152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

málefni innflytjenda.

271. mál
[17:42]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna á þessu mikilvæga frumvarpi. Ég held að það fari ekki á milli mála fyrir okkur öll sem höfum einhver afskipti af flóttamönnum, hvort sem það hefur verið hérlendis eða erlendis, að það er mikilvægt að halda vel utan um þessi mál. Það hefur líka verið ánægjulegt að sjá hvernig samfélagið allt, ríkið, einstaklingar og fyrirtæki, hafa á undanförnum vikum virkilega komið saman og hjálpast að við að takast á við þann stóra kúf sem kom í fjölda hælisleitenda vegna stríðsins í Úkraínu. Það er svo sannarlega líka þannig að þó svo að það sé stríð í Úkraínu og tæplega 1.000 manns hafi komið þaðan núna halda áfram að koma hælisleitendur annars staðar frá. Nú hefur ríkið sérstaklega lýst því yfir að þeir sem koma frá Úkraínu fái hér hæli um eitthvert árabil. En það eru enn þá aðilar sem þurfa að fara í gegnum hið formlega ferli að sækja um hæli. Mér fannst einmitt mjög gott að heyra að í frumvarpinu er talað um nauðsyn þess að hælisleitendur hafi aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, atvinnutækifærum og ef ég man rétt nefndi hv. þingmaður aðgang að strætisvögnum og ýmsu slíku.

Þá langaði mig að spyrja hv. þingmann hvernig það sem við sjáum hér inni, sem mér finnst allt af hinu góða, tengist við frumvarp sem er seinna hér í dag þar sem verið er að segja að með leyfi forseta: Útlendingur sem hefur fengið endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd nýtur áfram réttinda (Forseti hringir.) en þó að hámarki í 30 daga. Ef við synjum einhverjum um hæli og hann fer ekki úr landi á 30 dögum þá erum við að taka þetta allt saman af honum. (Forseti hringir.) Hvað finnst hv. þingmanni um það?