málefni innflytjenda.
Herra forseti. Ég kem hér upp hafandi hlustað á ræðu hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Ég vil fyrst segja, af því að mig langar að spyrja hann spurningar, að undanfarið hefur verið mjög sterkt ákall í samfélaginu um að styrkja og efla og styðja betur við þjónustu við innflytjendur í þessu samfélagi, þau sem hingað koma, hver sem ástæðan er fyrir því. Við því er m.a. brugðist með breytingum á skiptingu mála og verkefna innan Stjórnarráðs Íslands, með því að færa þetta verkefnasvið inn í félagsmálaráðuneytið. Það frumvarp sem við ræðum er auðvitað liður í því að styrkja og efla þessa þjónustu.
Ástæður þess að fólk kemur hingað voru raktar ágætlega í ræðu framsögumanns. Það getur verið stríð, það geta verið loftslagsbreytingar, sem við sjáum á hverjum einasta degi, í hverjum einasta fréttatíma, teikn um að séu að hafa veruleg áhrif um allan heim, náttúruhamfarir þeim fylgjandi eða af öðrum ástæðum. Það kemur mér þannig fyrir sjónir að það sé svo ríkur vilji í samfélaginu hér heima, hér á Íslandi, til að sýna þessum mismunandi aðstæðum fólks, sem deilir ekki kjörum með okkur hér heima, skilning, hlýju og mannúð.
Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi leitt hugann að því að orðræða eins og sú sem hann viðhefur hér kunni að ala á ótta og sundrung í samfélaginu.