dagskrártillaga.
Forseti vill geta þess að snemma á þessum fundi barst forseta dagskrártillaga sem hljóðar svo:
„Undirritaður gerir það að tillögu sinni í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis að á dagskrá næsta þingfundar verði þau dagskrármál sem forseti Alþingis leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 595. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, alþjóðleg vernd. Þess er óskað að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“
Undir þetta bréf ritar hv. þm. Andrés Ingi Jónsson. Í samræmi við ákvæði 77. gr. þingskapa verður tekin afstaða til þessa erindis við upphaf næsta þingfundar.