152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

traust í stjórnmálum.

[10:48]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Umræðan um ábyrgð og traust hefur verið hávær síðustu daga. Ábyrgð í stjórnmálum er grundvöllur trausts og traust almennings er forsenda stöðugleika. Traustið er límið sem heldur samfélaginu saman. Þetta held ég að hæstv. ráðherra viti vel og henni sé umhugað um að traust ríki um störf hennar og ríkisstjórnarinnar. En þrátt fyrir þetta þá virðast stjórnarliðarnir flestir staðráðnir í því að firra fjármálaráðherra ábyrgð, ábyrgð sem maður hefði haldið að ætti að vera veigamikið atriði í máli þar sem traust almennings er í húfi. Í kjölfar bankasölunnar kom þó í ljós að ekki hefði ríkt einhugur innan ríkisstjórnarinnar um fyrirkomulag útboðsins. Hæstv. viðskiptaráðherra sagði í fjölmiðlaviðtölum að á fundi ráðherranefndar um efnahagsmál hefði hún gagnrýnt fyrirkomulagið, t.d. á þeim forsendum að gæði framtíðareigna ættu að fá forgang fram yfir verð og að vanda ætti sérstaklega til verka í ljósi hrunsins. Viðskiptaráðherra virðist hafa verið sannspá því afar margt fór úrskeiðis við þessa sölu. Við seldum bröskurum með vafasama fortíð bréfin á afslætti, innherjar og starfsmenn Íslandsbanka fengu aðgang að viðskiptunum, söluaðilar fengu sjálfir að kaupa, faðir fjármálaráðherra tók þátt og svo mætti lengi telja.

Forseti. Aðfinnslur sem hæstv. viðskiptaráðherra flaggaði í ráðherranefndinni eru mikilvægar, sérstaklega í ljósi þess að ráðherranefndinni er ætlað að vera vettvangur samráðs og samræmingar við endurskoðun fjármálakerfisins. Aðkoma og athugasemdir viðskiptaráðherra hljóta því að vega þungt í allri ákvarðanatöku. Ég vil því spyrja ráðherra: Hvernig brugðust forsætisráðherra og fjármálaráðherra við gagnrýnum sjónarmiðum hæstv. viðskiptaráðherra í ráðherranefndinni? Voru þau tekin alvarlega? Hvers vegna var ekki tekið mark á réttmætum áhyggjum og forspá viðskiptaráðherra?