traust í stjórnmálum.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og innganginn og segja að ég er henni hjartanlega sammála um traustið. Traust er líklega eitt mikilvægasta og mesta hreyfiafl samfélaga, þ.e. ef ekki er traust er mjög erfitt að vinna að framfaramálum. Þetta á við um að það þarf að ríkja traust innan ríkisstjórna, það þarf að vera traust hér inni í þingsal og það þarf að ríkja gott traust svo við getum unnið saman. Við getum líka litið til þeirra samfélaga þar sem ríkir lítið traust. Þeim gengur bara frekar illa. Þannig að það er hárrétt hjá hv. þingmanni að traustið er afar mikilvægt.
Hv. þingmaður beinir spurningu til mín varðandi viðbrögð forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra varðandi þær áhyggjur eða þær efasemdir sem ég hafði um þessa aðferð. Ég get upplýst þingið um að þau höfðu líka þessar áhyggjur. Það var þannig að það kemur tillaga frá Bankasýslu ríkisins um að þessi aðferð sé til þess fallin að hámarka verð á þessari eign og þessi aðferð sé sú sem sé alls staðar beitt um allan heim. Ég verð bara að viðurkenna það að ég hafði ákveðnar efasemdir um þetta, sérstaklega í ljósi þess að hér varð risastórt fjármálahrun og traustið í íslensku samfélagi fór. Það er gríðarlega alvarlegt og þúsundir fjölskyldna misstu heimili sín og áttu um mjög sárt að binda. Þess vegna var afskaplega mikilvægt að við myndum vanda okkur og huga að mikilvægi traustsins.