bankakerfi framtíðarinnar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vitna í orð forsætisráðherra og minnast á flokksþing Framsóknarmanna frá 14. september 2015 þar sem var verið að ræða um það hvort Landsbankinn ætti að verða samfélagsbanki. Ég verð að segja að upphaflega var ég með ákveðnar efasemdir hvað það varðar en ég er að verða mun jákvæðari og tel að við eigum að skoða það að það þarf að auka fjölbreytni á íslenskum fjármálamarkaði og það þarf að huga verulega að til að mynda þjónustutekjum. Þær eru mjög miklar í samanburði við hin Norðurlöndin. Ég hyggst beita mér á þeim vettvangi sem samkeppnisráðherra og gera úttekt á því og samanburð á milli íslenskra fjármálafyrirtækja annars vegar og hins vegar á Norðurlöndunum, athuga hver munurinn er (Forseti hringir.) og leggja til leiðir til að bæta þjónustu og veita það aðhald sem nauðsynlegt er.