fyrirkomulag við sölu Íslandsbanka.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé komið í ljós einmitt að það er farsælast að hafa svona einkavæðingu — það þarf allt að vera opið, það þarf að vera gagnsætt og allir þurfa að geta tekið þátt. Svo tel ég að eftirmarkaðurinn eigi að sjá um hvernig eignarhaldið þróast. Það er farsælast, það er einfalt. Það sem gerist í þessu söluferli er að mjög erfitt er fyrir stjórnvöld og Bankasýsluna að hafa algjöra stjórn á því hvað gerist svo þegar sölupantanir fara að berast. Það kann að vera að 90% þeirra sem tóku þátt og voru í útboðinu hafi gert allt eins og átti að gera það. Bara að það séu einn eða tveir aðilar þar sem einhver misbrestur verður, það varpar skugga á allt ferlið. Þess vegna var þessi aðferð mjög áhættusöm.