152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

afstaða ráðherra til söluferlis Íslandsbanka.

[11:29]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er til skammar, er svar hæstv. viðskiptaráðherra þegar ég spyr hana út í þau orð hennar sjálfrar um páskana að fleira myndi koma í ljós í þessu máli á næstu dögum. Það er mér til skammar að standa hér í ræðusal Alþingis að leita svara hjá hæstv. ráðherrum um þriðju stærstu einkavæðingu Íslandssögunnar. Ég held að hæstv. viðskiptaráðherra sé að segja alveg satt, hún hafi haft áhyggjur og hún hafi lýst því yfir. Ég held hins vegar að formaður Framsóknarflokksins hafi valtað yfir hana og hún hafi valið samstarfið, ríkisstjórnarsamstarfið, fram yfir hagsmuni þjóðarinnar. Við erum að upplifa hérna kennslustund í sérhagsmunagæslu í boði viðskiptaráðherra.