152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

afstaða ráðherra til söluferlis Íslandsbanka.

[11:32]
Horfa

Erna Bjarnadóttir (M):

Herra forseti. Sú sem hér stendur er nú nýgræðingur hérna á þinginu en stóð í þeirri trú að þessi dagskrárliður væri til þess að ráðherrar svöruðu fyrirspurnum hv. þingmanna. Ég spurði hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra hvort hún gæti upplýst mig um hvort sú sameiginlega löggjöf á Evrópska efnahagssvæðinu, sem gildir um banka og verðbréfaviðskipti og starfsemi, gilti ekki örugglega hér á landi, í tilefni þeirra orða forstjóra Bankasýslunnar um að þetta hefði aldrei gerst þar sem hann hefur starfað. Gilda einhver önnur lög? Þetta er bara tæknileg spurning sem ég vil þá að biðja forseta að beita sér fyrir að svör fáist við, ef ég má. Það er nefnilega með eindæmum að fylgjast með þessum flótta forsvarsmanna Bankasýslunnar þegar þeir eru í sínum hrútskýringum að útskýra þann leiðangur sem þeir lögðu af stað í þarna 4. febrúar eftir fundinn ráðherranefndinni. Og það þarf líka að svara tæknilegum spurningum, ekki bara spurningum um ábyrgð.