152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

afstaða ráðherra til söluferlis Íslandsbanka.

[11:50]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Hér er talað um að við eigum að horfa á stóru myndina. Já, hvernig væri þá líka bara að horfa á hana alla? Hvers vegna eru bankarnir svona verðmætir í dag? Eigum við að kíkja á það? Eigum við að kíkja á nokkur dæmi um það sem gert var eftir hrun? Þá stóð ríkið fyrir stærsta kennitöluflakki sögunnar til að bjarga bönkunum. Það voru engar neikvæðar afleiðingar hrunsins í rauninni fyrir bankana, eða svo til engar. Málamyndarefsingar gagnvart nokkrum einstaklingum sem samt héldu öllu sem þeir áttu. Lánasöfnin voru svo færð yfir til nýju bankanna á 50% afslætti a.m.k. og við höfum heyrt dæmi um minna. Þessu var í engu skilað til fólksins í landinu. Bankarnir sáu sér þvert á móti leik á borði að innheimta hvert einasta lán upp í topp og án nokkurrar miskunnar. Stjórnvöld sögðu ekki múkk við því heldur létu sér vel líka og verðlaunuðu með bónusum þá starfsmenn sem harðast gengu fram og náðum mestu inn. Á sama tíma og ákveðið var að ganga hart fram gegn skuldurum, saklausu fólki sem hafði það eitt sér til saka unnið að taka húsnæðislán, fengu hrunverjarnir, sjálfir útrásarvíkingarnir, um 2.000 milljarða afskrifaða. (Forseti hringir.) 2.000 milljarða. Frá hruni hafa nýju kennitölurnar hagnast (Forseti hringir.) um meira en 1.000 milljarða. Þetta, blóð íslenskra heimila, er grunnurinn að (Forseti hringir.) velmegun bankanna í dag.