152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

afstaða ráðherra til söluferlis Íslandsbanka.

[12:09]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Hér heldur söngurinn áfram. Hv. þm. Helga Vala Helgadóttir hnýtir í það að Íslandsbanki hafi ekki fengist ókeypis o.s.frv. Hv. þm. Kristrún Frostadóttir, sem gæti nú kennt okkur ýmislegt, ýmis trikk í þessari fjármálastarfsemi og gefur sig út sem sérfræðing á því sviði, talar um það að þegar við leggjum fé í eigin banka þá sé það kostnaður almennings. Þetta er auðvitað allt saman til að þyrla upp ryki og reyk, virðulegur forseti, í augu almennings og villa um fyrir almenningi. Í bankahruninu þegar alvöru erfiðar aðstæður komu í þessu samfélagi, þegar grunnur samfélagsins var við það að gefa sig, þá snerist málflutningur fólks úr þessum sama flokki um stjórnarskrá og Icesave-samninga og að ganga hér til samninga og afsala þjóðinni þessum eignum, sem þó náðist í síðar til að gera úr verðmæti, til Evrópubanka og skilja eftir okkur með skuldirnar. Eftir breytingarnar sem voru gerðar í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks m.a. (Forseti hringir.) þá hefur tekist vel til. Viðspyrnan er gríðarleg núna og ástand heimila, fyrirtækja og allra þrátt fyrir áföll hefur aldrei verið sterkara. (Forseti hringir.) Í þessari sölu, jú, gerðust einhver mistök sem við getum lært af (Forseti hringir.) en að líkja þessu saman við það sem hér gerðist er auðvitað algjör rangfærsla (Forseti hringir.) og ekki gert til annars en að þyrla upp ryki. Út á það gengur þessi umræða, virðulegur forseti.

(Forseti (OH): Ég minni hæstv. ráðherra á að ræðutími í fundarstjórn forseta er ein mínúta. )