málefni innflytjenda.
Frú forseti. Í ljósi þess að töluverður hluti umræðunnar í gær átti sér stað, ef svo má segja, í skjóli nætur ætla ég að leyfa mér að rifja upp hér atriði sem ég eyddi nokkrum tíma í. Tek núna stuttar fimm mínútur til að ramma það inn fyrir þá sem fylgjast með. Í frumvarpinu eins og það liggur fyrir eru sett fram ýmis markmið og leiðir að því að auka réttindi Fjölmenningarseturs til að vinna með persónuupplýsingar og að leita leiða til að tengja betur þá einstaklinga sem koma til landsins og öðlast vernd við sveitarfélögin eða eftir því sem hentar heilbrigðisþjónustu eða annarri ráðgjöf. Það er í sjálfu sér allt gott og blessað. En það sem mér þykir blasa við er að þeim markmiðum er öllum hægt að ná án þess að veita þeim fjórum hópum sem bætt er við núna og gerðir jafnsettir svokölluðum kvótaflóttamönnum þau auknu réttindi sem kvótaflóttamannastöðunni fylgja. Það er hreinlega alveg ótrúlegt að ekki hafi verið lagt neitt mat á þann kostnað sem þessu fylgir.
Ég fór í fyrri ræðu minni yfir samanburðinn bara gagnvart vinnuskjali og vinnureglum um hvernig tekið er á móti kvótaflóttamönnum í dag og reglugerðinni eins og hún stendur varðandi það hver áhrifin eru af því að öðlast vernd. Þarna er grundvallarmunur á. Ef það er pólitískur vilji til þess að jafna þetta þá nær það fram að ganga en það er nauðsynlegt fyrir okkur þingmenn að hafa eitthvert mat á því hver áhrifin eru, ekki bara samfélagsleg heldur líka fjárhagsleg. Þess vegna velti ég því upp núna hvort það sé ekki nauðsynlegt að þetta mál gangi milli 2. og 3. umr. til fjárlaganefndar þar sem yrði gerð úttekt á þessu, því að það er nægur tími til að klára málið þegar þing kemur saman í rúman mánuð eftir sveitarstjórnarkosningahlé. Það er ekki boðlegt að setja okkur þingmenn í þá stöðu að taka afstöðu til máls eins og þessa þar sem ráðherrann fer bæði í texta frumvarps og greinargerðar og í ræðum sínum og andsvörum eins og köttur í kringum heitan graut og forðast að ræða kostnaðarhlutann málsins. Þá er ég bara að tala um kostnaðarhlutann sem er hægt að ná utan um, bara með einföldum útreikningi. Hitt er síðan algerlega látið liggja eftir, þ.e. afleiddu áhrifin af þessu, reynist áhyggjur mínar og okkar í Miðflokknum á rökum reistar og þessi breyting hafi áhrif á svokallaðan „pull factor“, auki fjölda umsókna og kannski sérstaklega fjölda tilhæfulausra umsókna sem leggist þannig þungt á kerfið að erfiðara verði um vik að aðstoða þá með góðum hætti og styðja við aðlögun að íslensku samfélagi sem við ráðum við að taka á móti. Ég hef talað fyrir því, bara svo ég haldi því aftur til haga, að við eigum að gera vel í þessum málum og við eigum að taka vel á móti þeim sem við tökum á móti. En við eigum ekki að færast of mikið í fang því það mun ekki bara hafa neikvæð áhrif gagnvart þeim sem hingað koma og vilja og þurfa að aðlagast íslensku samfélagi ýmissa hluta vegna heldur mun það líka hafa neikvæð áhrif bara á umræðuna í samfélaginu. Ég held að það sé til mikils vinnandi að forða þeirri þróun og þeirri stöðu.
Ég held því að það sé hreinlega ekki boðlegt fyrir Alþingi Íslendinga að vera í þessari stöðu þar sem bein fjárhagsleg áhrif, sem eru allt annars eðlis heldur en þær 40,8 milljónir sem gert er ráð fyrir að verja til þess að kaupa stóla, skrifborð og ráða þrjá starfsmenn til starfa vegna verkefnisins, eru alveg látin liggja milli hluta, þ.e. kostnaðurinn af þessum viðbótarréttindum þeirra sem hér eru fyrir og áætla síðan út frá fjölda umsókna og hvernig þessi mál liggja og hins vegar þeirra afleiddu áhrifa sem þetta kann að hafa á fjölda umsókna. Í þessu felst engin neikvæðni gagnvart þeim sem hingað koma (Forseti hringir.) heldur verðum við að hafa fast land undir fótum hvað þessar ákvarðanir varðar.