152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

[13:32]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. mennta- og viðskiptaráðherra fyrir að taka þessa sérstöku umræðu í dag og segja að ég er sammála hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra þegar hún segir í viðtali í Morgunblaðinu á dögunum að ábyrgðin á bankasölunni hljóti að vera stjórnmálamanna sem tóku ákvörðun í málinu. Næstum allir Íslendingar eru óánægðir með sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Könnun Fréttablaðsins sýnir að 83% landsmanna segjast vera óánægð með hvernig tókst til. Lögin um sölu á eignarhlutum ríkisins í bönkunum, sem samþykkt voru í desember 2012, áttu að skapa trausta umgjörð ef selja ætti hlutina. Leiðarstef laganna eru gagnsæi, hlutlægni, jafnræði og hagkvæmni. Draga átti dýrkeyptan lærdóm af bankahruninu. Salan í höndum fjármála- og efnahagsráðherra hefur hins vegar orðið til þess að almenn óánægja ríkir og traust til hæstv. ráðherra og ríkisstjórnarinnar hefur beðið hnekki.

Ásakanir um spillingu og vanrækslu eru háværar og um að lögin um söluna hafi verið brotin. Þingmenn stjórnarflokkanna hafa tekið undir með stjórnarandstöðunni og lýst vonbrigðum sínum með niðurstöðuna. Formaður fjárlaganefndar sagði í ræðu á Alþingi að hún hefði staðið í þeirri trú að um langtímafjárfesta væri að ræða og því hefði niðurstaðan komið á óvart. En Bankasýslan segir að hvert skref í söluferlinu hafi verið tekið í nánu samstarfi við stjórnvöld sem hafi verið ítarlega upplýst um öll skref sem stigin voru, enda gera lögin um sölu á eignarhlutum ríkisins í bönkunum ráð fyrir því. Í lögunum er hlutverk og ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra skrifað inn. Lögin eru alveg skýr um að það er ráðherra sem tekur ákvörðun um tilboðin, samþykkir þau eða hafnar. Fjármála- og efnahagsráðherra getur ekki falið sig á bak við Bankasýsluna eða miðlara úti í bæ. Fjármála- og efnahagsráðherra ber alla ábyrgð.

Frú forseti. Hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra segir einnig í fyrrnefndu viðtali við Morgunblaðið að hún hafi ekki verið hlynnt þeirri aðferðafræði sem beitt var við sölu á 22,5% hlut í Íslandsbanka þann 22. mars síðastliðinn. Það er því mikilvægt að fá svör við því hvort hæstv. ráðherra telji að framkvæmd útboðsins hafi verið í samræmi við þær fyrirætlanir sem kynntar voru í ráðherranefnd um efnahagsmál í aðdraganda útboðsins og hvaða annmarka ráðherrann telur að hafi verið á sölunni.

Í umfjöllun á vef Stjórnarráðsins um ráðherranefndina segir að nefndinni sé ætlað að vera vettvangur samráðs og samræmingar við endurskoðun fjármálakerfisins í samræmi við þá áherslu í sáttmála ríkisstjórnarinnar að breið sátt náist um endurskipulagningu fjármálakerfisins á Íslandi. Það er því nauðsynlegt að við fáum að heyra frá hæstv. ráðherra hvort það hafi verið rætt í nefndinni að gera lágmarkskröfur til fjárfesta, svo sem um lágmarkshlut og orðspor til að tryggja þátttöku hæfra langtímafjárfesta í samræmi við markmið eigendastefnu ríkisins um heilbrigt eignarhald fjármálafyrirtækja til lengri tíma, og hvernig brugðist hafi verið við sjónarmiðum hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra varðandi söluna innan ráðherranefndarinnar.

Hæstv. forsætisráðherra hefur sagt að umgjörðin um bankasöluna hafi ekki haldið og því þurfi að breyta umgjörðinni og byrja á því að leggja niður Bankasýsluna líkt og ríkisstjórnin hafi ákveðið. Því spyr ég hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra hvort hún hafi verið höfð með í ráðum þegar tekin var ákvörðun um að leggja Bankasýsluna niður. Mér finnst augljóst að fjármála- og efnahagsráðherra hafi ekki haldið sér innan umgjarðarinnar um söluna sem lögbundin er og að á því þurfi hann að axla ábyrgð. Telur hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hafi axlað þá pólitísku og lagalegu ábyrgð sem fylgir misbrestinum á bankasölunni? Og ef ekki, hvað þarf að koma til?

Í lokin dreg ég sama spurningar til hæstv. ráðherra. Telur menningar og viðskiptaráðherra að framkvæmd útboðsins hafi verið í samræmi við þær fyrirætlanir sem kynntar voru í ráðherranefnd um efnahagsmál í aðdraganda útboðsins? Hvaða annmarkar voru á sölunni? Var rætt í ráðherranefndinni um lágmarkskröfur til fjárfesta? Hvernig var brugðist við sjónarmiðum menningar- og viðskiptaráðherra í ráðherranefndinni? Var hún höfð með í ráðum þegar tekin var ákvörðun um að leggja Bankasýsluna niður? Og telur hæstv. ráðherra að fjármála- og efnahagsráðherra hafi axlað pólitíska og lagalega ábyrgð á sölunni?