152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

[13:43]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir þessa umræðu og ráðherra fyrir svörin. Ráðherrann sagði hér áðan að það hefði fengist gott verð fyrir söluna á bankanum en það má líka alveg fylgja með að það fékkst líka rosalega góðar afsláttur til þeirra sem keyptu og fáránlega mikill kostnaður fylgdi við söluna. Staðreyndin liggur fyrir: 108 milljarða er búið að fá fyrir bankann, 35 milljarða er búið að gefa í afslátt og 2,1 milljarður í kostnað. Þetta þýðir á mannamáli að ef við tökum þessi 22% sem var verið að selja núna, og ef kostnaður fer í þær hæstu hæðir sem til stendur, þá eru það 700 milljónir sem gerir 3,3 milljónir á hverja sölu, þessar rétt rúmlega 200 sölur. Setjum það í samhengi við það sem eldri borgarar og öryrkjar voru að fá um síðustu áramót. Ég spyr: Er nóg til af peningum fyrir þá ríku? Þegar við erum búin að fá 108 milljarða, 80 milljarða gróða, búin að gefa 35 milljarða afslátt og 2,1 milljarð í sölu, er þá ekki kominn tími til að segja: Nú er komið nóg fyrir þá ríku? Förum nú eitthvað að gera fyrir þá lífeyrisþega sem hokra hér í óðaverðbólgu, 7,2% verðbólgu, og hafa ekkert fengið. Eldri borgarar hafa ekki fengið krónu í öllu Covid, hafa þurft að þrengja sultarólarnar og það hafa öryrkjar líka þurft að gera. Okurleiga, okurmatvælaverð. Það virðist vera að þessi ríkisstjórn sé upptekin við það eitt að gera þá ríku ríkari en gleyma þeim fátæku. (Forseti hringir.) Þeir eiga bara að herða (Forseti hringir.) sultarólina.