152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

[13:45]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka þessa umræðu. Sala ríkisins í Íslandsbanka er gríðarlega mikilvæg aðgerð. Fyrir utan ábata fyrir ríkissjóð er um samkeppnisrekstur að ræða sem ríkið á ekki að vera að vasast í. Bankastarfsemi er líka áhættusöm og ég tala nú ekki um til framtíðar þar sem enginn getur sagt með vissu hvernig hlutir munu þróast. Útboðið á dögunum, eins og hæstv. ráðherra Lilja Alfreðsdóttir kom inn á, heppnaðist vel í þeim meginmarkmiðum sem að var stefnt. Verð skiptir þar auðvitað einna mestu, þó ekki öllu, og hefur komið fram að árangur útboðsins hvað verðhliðina varðar sé fáheyrður. En hér kemur meira til.

Hæstv. ráðherra gerði hér að umtalsefni mikilvægi trausts. Ég vil fá að taka heils hugar undir þau orð ráðherra. Allt frá bankahruninu hefur traust til bankakerfisins verið lítið og það er ekki gott. Þessi umræða hér og undanfarna daga minnir okkur auðvitað á að svona aðgerð, og þá tala ég ekki um þegar um sölu á ríkiseign er að ræða, verður að vera hafin yfir vafa svo um hana ríki þetta mikilvæga traust. Það er því bæði gott og nauðsynlegt að hafnar séu rannsóknir á þessari aðgerð allri saman, bæði af hálfu Ríkisendurskoðunar og fjármálaeftirliti Seðlabankans.

Talandi um traust þá hefur verið með miklum ólíkindum að heyra marga fulltrúa stjórnarandstöðunnar ýja að því að Ríkisendurskoðun sé ekki treystandi til að mæta þeirri rannsókn sinni með sjálfstæði sitt að leiðarljósi af því hvernig rannsóknarbeiðnin kom til. Það fer ekki saman hljóð og mynd þegar sumir fulltrúar segjast annars vegar treysta Ríkisendurskoðun en treysta hins vegar ekki að hún standi undir því trausti ef beiðni rannsóknarinnar kom til á einhvern ákveðinn hátt. Það er skylda okkar að í þessu mikilvæga máli verði komist til botns í hvernig til tókst á eins hlutlægan hátt og kostur er. Ég tek heils hugar undir orð hæstv. ráðherra um mikilvægi þess að bíða niðurstöðu þessara rannsókna áður en dómar eru kveðnir upp, ekki síst til þess að passa upp á mikilvægi trausts.