152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

[13:47]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Fyrr í dag upplýsti viðskiptaráðherra um að hún hafi ekki verið ein um það að lýsa yfir áhyggjum sínum og efasemdum um fyrirkomulag bankasölunnar. Það hlýtur að vekja furðu að allir þrír ráðherrarnir sem eiga sæti í ráðherranefnd um efnahagsmál hafi lýst yfir áhyggjum sínum varðandi útboðsleiðina sem valin var án þess að detta í hug að viðra áhyggjur sínar við þing og þjóð. Ekki nóg með það heldur ákváðu þau að fara einmitt þá leið sem olli þeim, að sögn viðskiptaráðherra, öllum áhyggjum án þess að gera neitt til að koma til móts við áhyggjuefnið. Ef ráðherrarnir höfðu allir svona miklar áhyggjur af ferlinu, hvers vegna gripu þau ekki til ráðstafana eða völdu hreinlega einhverja aðra leið? Verkefninu var bara hent í Bankasýsluna sem var smjaðrað fyrir með rauðvíni, konfekti og flugeldum og fjármálaráðherra kvittar svo bara upp á gjörninginn svo að segja gagnrýnis- og umhugsunarlaust. Fjármálaráðherra lét ekki einu sinni skruna í gegnum listann til að gá hvort pabbi sinn væri mögulega á honum eða einhverjir aðrir nákomnir sem gætu valdið hagsmunaárekstri, sem gæti gert það að verkum að fjármálaráðherra væri vanhæfur. Hvers konar gáleysi er þetta? Í kjölfarið pantar svo fjármálaráðherra rannsókn frá ríkisendurskoðanda í trássi við vilja þingsins á þeim tíma. En, forseti, ráðherra sem vill í alvörunni axla ábyrgð hlýtur að eftirláta þinginu, sem gegnir því hlutverki að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu, að ákveða hver sé best til þess fallinn að rannsaka embættisverk hans. Nú hefur viðskiptaráðherra sagt að með beiðni fjármálaráðherra um að ríkisendurskoðandi hefji rannsókn hafi fjármálaráðherra byrjað að axla ábyrgð. Það voru svörin sem ég fékk í óundirbúnum fyrirspurnum í morgun við hæstv. viðskiptaráðherra. Væri ekki tilvalið að viðskiptaráðherra hvetti fjármálaráðherra til að klára að axla ábyrgð með því (Forseti hringir.) í það minnsta að skipa rannsóknarnefnd og upplýsa málið að fullnustu (Forseti hringir.) og verða við vilja þeirra sem hafa því hlutverki að gegna að hafa eftirlit með embættisverkum fjármálaráðherra?