sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda og ráðherra fyrir þau svör sem hér hafa komið fram. Það er mikilvægt, eins og við höfum verið að ræða undanfarna daga, að vera skýr þegar við erum að tala um svona stór mál eins og það sem við fjöllum um hér og það er líka mikilvægt að við tölum af ábyrgð og skynsemi. Ég tel að ég hafi a.m.k. reynt að hafa það í fyrirrúmi frá því að þetta mál komi inn á borð okkar hér í þinginu og inn á borð fjárlaganefndar. Það er alveg ljóst að þetta hefur allt valdið okkur vonbrigðum, gríðarlegum vonbrigðum, hver niðurstaðan sem við stöndum frammi fyrir hefur orðið. Þetta átti allt að byggjast á því að geta selt með gagnsæi að leiðarljósi, að við gætum upplifað að það væri traust. En það er ekki niðurstaðan. Þess vegna hef ég sagt að ég tel einboðið, það er a.m.k. mitt mat, að í þessa aðferðafræði förum við ekki aftur þegar og ef við ákveðum að selja það sem eftir stendur í Íslandsbanka. Það eru spurningar sem standa út af eftir fundinn með Bankasýslunni í gær. Það skýrðist margt en það stendur líka ýmislegt eftir, m.a. hvort við þurfum að styrkja löggjöfina, hvort heldur er varðandi miðlarana, að valdi sé ekki útvistað, eins og mér fannst skýringarnar vera framlagðar í gær. Mér finnst líka ekki allt liggja á hreinu varðandi þessar valgreiðslur sem eru inni í þessum 700 milljónum, mér finnst það ekki skýrt hvað er þar að baki o.s.frv. Ég held því að það sé margt sem við eigum eftir að sjá og, eins og ég hef sagt áður, þegar kemur að því, virðulegi forseti, að niðurstaða fæst hjá ríkisendurskoðanda og Fjármálaeftirlitinu tel ég einboðið að fjárlaganefnd taki málið til sín aftur og fjalli um það.