sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.
Virðulegur forseti. Salan á 50 milljarða hlut þjóðarinnar í Íslandsbanka verður sífellt undarlegri. Nú hefur komið í ljós, með ummælum viðskiptaráðherra fyrr í dag, að aðdragandinn í ríkisstjórn og ráðherranefndinni er sennilega furðulegasta púslið í þeirri skrípamynd sem er að teiknast upp. Fyrir páska sagði viðskiptaráðherra orðrétt, með leyfi forseta:
„Ég var ekki hlynnt þeirri aðferðafræði sem varð ofan á við sölu á bréfum í Íslandsbanka. Þessum sjónarmiðum kom ég mjög skýrt á framfæri í aðdraganda útboðsins. […] Önnur leið var hins vegar valin og því miður er fátt sem kemur á óvart í þessu máli og hver útkoman varð.“
Viðskiptaráðherra vildi aðra leið, varaði við og sá fyrir að útkoman yrði stórslys sem á einni nóttu eyddi öllu trausti. Það var gott hjá ráðherranum að vara við en vissulega hefði verið áhrifaríkara að gera það með skýrum hætti áður en salan varð að veruleika. Forsætisráðherra brást við þessu með því að sá efasemdum um frásögn viðskiptaráðherra, með því að benda á að ekkert hefði verið bókað um efasemdirnar og áhyggjurnar. Bæði forsætis- og fjármálaráðherra voru hins vegar alveg í skýjunum með útboðið fyrstu dagana eftir að því lauk en svo birtist listinn og allt hrundi. Viðskiptaráðherra opinberar svo hér í þinginu í dag að aðrir ráðherrar hafi bæði haft áhyggjur og efasemdir um þá leið sem farin var. Það þarf eiginlega að endurtaka þetta: Viðskiptaráðherra var að opinbera að bæði fjármála- og forsætisráðherra höfðu efasemdir og áhyggjur af þeirri leið sem valin var en fóru hana samt. Hvernig getur nokkur lifandi maður efast um ábyrgð ráðherranna eftir þetta? Hvernig er hægt að halda því fram að ekki þurfi að rannsaka ábyrgð ráðherranna þriggja sem allir höfðu áhyggjur af leiðinni, sem allir höfðu efasemdir um aðferðina en ákváðu samt, áhyggjufullir og fullir efasemda, að selja bankann með þessum hætti? Ríkisendurskoðun er ekki að rannsaka þennan aðdraganda sölunnar, ekki Fjármálaeftirlitið heldur. Rannsóknarnefnd Alþingis verður að fara ofan í saumana á því hvers vegna ráðherrarnir þrír völdu (Forseti hringir.) að selja 50 milljarða eign almennings með leið sem þeir höfðu sjálfir (Forseti hringir.) efasemdir um og áhyggjur af, leið sem endaði lóðbeint ofan í skurði.