sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.
Virðulegi forseti. Í vikunni hefur okkur gefist gott tækifæri til að eiga samtal við ráðherra okkar sem saman sitja í ráðherranefnd um efnahagsmál. Á mánudag sat hæstv. fjármálaráðherra fyrir svörum, á þriðjudag var það hæstv. forsætisráðherra og í dag er það hæstv. viðskiptaráðherra. Ég fagna því að þessar samræður skuli nú hafa átt sér stað. Ekki hefur staðið á ráðherrum að koma hér og eiga samtal við þingið. Hér í dag hefur verið mikið rætt um ummæli hæstv. viðskiptaráðherra sem hún lét falla fyrir nokkru. Í umræðum við hæstv. forsætisráðherra í fyrradag kom fram að viðskiptaráðherra hefði á fundi ráðherra í ráðherranefnd ávarpað aðferðafræði bankans sölunnar en ekkert hefði verið fært til bókar og er ekkert óeðlilegt við það, enda er viðskiptaráðherra sprenglærð og hokin af reynslu hvað varðar málefni fjármálamarkaða. Það er gott og það er nauðsynlegt að vera í þannig samstarfi að fólk geti tekið umræðuna, kastað óhikað á milli sín vangaveltum og komist að niðurstöðu. Það er einmitt það sem er gert í samstarfi þessara þriggja flokka sem saman mynda ríkisstjórn. Eins og fram kom í máli mínu í fyrradag hér í ræðustól Alþingis má segja að þegar horft er á stóru myndina hafi þeim markmiðum sem lagt var upp með verið náð. Það tókst að selja 22,5% í Íslandsbanka, það tókst að fá ásættanlegt verð fyrir þann hlut, það tókst að fá fjölbreytta fjárfesta inn í eigendahóp bankans og það tókst að losa um það mikla eignarhald ríkisins í fjármálakerfinu hér á landi sem ég tel ekki æskilegt.