152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

[14:06]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Í atkvæðaskýringu þegar lög um sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum voru afgreidd sagði þáverandi þingmaður og núverandi hæstv. fjármálaráðherra að ríkið væri að selja hluti í bönkunum og, með leyfi forseta, „allt vald er afhent ráðherranum“. Þetta eru hans orð og aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins tóku þar undir. En það skiptir einmitt máli hvernig er farið með valdið. Það er hægt að fara með valdið þannig að hafa áhyggjur af hinu og þessu en gera ekkert í því. Sérstaklega ekki þegar það er innbyggt í lögin að ráðherra taki við rökstuddu áliti frá Bankasýslunni og eigi að leggja mat á það hvernig til tókst með tilliti til þeirra skilyrða sem sett voru af ráðherrunum sjálfum. Nei, það gerði ráðherra ekki. Fjármálaráðherra hefur áhyggjur. Hérna verðum við vitni að því að það er enn og aftur verið að fara í sölu á ríkiseignum þar sem það eina sem skiptir máli, að því er virðist, er endanlegi verðmiðinn. Það virðist vera nauðsyn hins vegar að vinir og vandamenn fái brauðmola á meðan til að friðþægja einhverja hér og þar í samfélaginu. Það er bara það sem gerist alltaf, aftur og aftur. Hérna kemur síðan hv. þm. Hildur Sverrisdóttir og segir að enn og aftur sé stjórnarandstaðan að ýja að því að Ríkisendurskoðun sé ekki treystandi. Í alvöru? Það er búið að tyggja ofan í þingsalinn að það er ekki málið. Málið snýst um það að fjármálaráðherra kom og sagði við Ríkisendurskoðun: Hérna, þið eigið að hafa eftirlit með framkvæmd samninga. Ekki með ákvörðunum ráðherra eða neinu því um líku, heldur með framkvæmd samninga. Það væri frumkvæðisathugunarmál hjá Ríkisendurskoðun að skoða málið í víðara samhengi, frumkvæðisathugunarmál. (Forseti hringir.) Ég treysti Ríkisendurskoðun fullkomlega til að gera það. Ég segi það bara mjög skýrt og greinilega (Forseti hringir.) að Ríkisendurskoðun, og við höfum fyrri heimildir fyrir því, nær ekki yfir allt þetta svið, (Forseti hringir.) allt þetta mál. En ég treysti því fullkomlega að Ríkisendurskoðun sinni sínum hluta af því mjög vel. (Forseti hringir.) Ég hef engar áhyggjur af því. (Gripið fram í.)

(Forseti (JSkúl): Forseti biður þingmenn að virða ræðutíma og ljúka máli sínu þegar þeir stíga úr ræðustól.)