152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

[14:09]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Frú forseti. Það er útilokað annað en að farið verði nákvæmlega yfir það hvernig sölunni á hlut í Íslandsbanka var háttað. Mig langar að segja það vegna orða hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar að þingmenn hafa ekki alveg talað einum rómi um traust sitt til Ríkisendurskoðunar eða annarra eftirlitsstofnana. Það er rétt. Hv. þm. Björn Leví hefur verið skýr í því. Umræðan hefur verið dálítið úti um allt og það er kannski ekkert skrýtið því að við erum mörg og við stöndum fyrir marga flokka. Ég tel einboðið að það séu margir þættir sem þarf að skoða, sér í lagi þættir eins og þátttaka söluráðgjafa í ferlinu og það hvort þátttaka aðila sem hugsanlega voru ekki hæfir hafi verið þarna. Þetta er nú þegar komið í skoðun hjá Fjármálaeftirlitinu og það tel ég mikilvægt. Það hefur verið aðeins í umræðunni að það sé einhvers konar pöntuð umræða sem hafi verið beðið um hjá Ríkisendurskoðun. Mig langar bara að fá að vitna í, vegna þess að bréf hæstv. fjármálaráðherra er opinbert og er á netinu, en þar segir, með leyfi forseta:

„Þess er hér með farið á leit við Ríkisendurskoðun að hún kanni og leggi mat á hvort framangreind sala hafi samrýmst lögum og góðum stjórnsýsluháttum.“

Svona opið er þetta. Ég tel að Ríkisendurskoðun sé hárréttur fyrsti punktur til að fara í þessa rannsókn. Ég líkt og margir aðrir treysti Ríkisendurskoðun vel. Ef á þarf að halda (Forseti hringir.) höldum við rannsókninni áfram. Ég er sammála því að það þarf að ríkja traust (Forseti hringir.) á fjármálakerfinu okkar og það þarf að ríkja traust um það að við (Forseti hringir.) vinnum eftir góðum ferlum hér á Alþingi.

(Forseti (JSkú): Forseti minnir enn og aftur á ræðutíma sem er takmarkaður.)