152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

[14:11]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Hæstv. viðskiptaráðherra greindi frá því í fjölmiðlum fyrir páska að hún hefði komið því skýrt á framfæri innan ríkisstjórnarinnar að hún væri mótfallin þeirri leið að selja bréf í Íslandsbanka til valins hóps fjárfesta. Fátt kæmi henni á óvart um það hver útkoman varð. Og hún bætti um betur. Hún sagði að meira myndi koma í ljós í máli þessu á næstu dögum, vildi samt ekki segja hvað það væri því að hún var á leiðinni í páskafrí. Hvorki forsætisráðherra né fjármálaráðherra hafa getað neitað orðum viðskiptaráðherrans en ríghalda í það að engin bókun liggi fyrir, bera fyrir sig ímyndaðan trúnað um opinber ummæli ráðherrans. Þau geta samkvæmt þessu ekki tjáð sig um mál sem eru í opinberri umræðu í fjölmiðlum.

Í morgun staðfesti hæstv. viðskiptaráðherra, sem stendur hér frammi á gangi, að formaður Framsóknarflokksins hefði ekki hlustað á varnaðarorð hennar og sagði að það væru ekki alltaf allir sammála. Eftir stendur sú spurning hvort viðskiptaráðherra hafi líka verið einangruð um þessa afstöðu sína innan eigin flokks. Enginn þingmaður flokksins hefur staðið með henni, spurðir inni í þingsal um afstöðu hennar. Þá reynir ráðherrann að draga í land. Hún talar um að öll ráðherranefndin um efnahagsmál hafi haft áhyggjur og efasemdir. En engu að síður keyrðu þau öll sem einn maður á þennan sama vegg og úr varð sala sem einkennist af hagsmunaárekstrum og 83% þjóðarinnar eru óánægð með, meira að segja Bankasýslan segir að helsti galli þessarar sölu séu hagsmunaárekstrarnir.

Getur verið, hæstv. viðskiptaráðherra, að ráðherrastólarnir hafi verið mikilvægari en hagsmunir þjóðarinnar? Var mikilvægara að verja samstarf ríkisstjórnarinnar en traust þjóðarinnar sem hún talar um? Hún svaraði ekki stærstu spurningu minni í morgun og ég krefst svara: Hvað átti hæstv. viðskiptaráðherra við þegar hún sagði að meira myndi koma í ljós í máli þessu á næstu dögum?

Frú forseti. Ég beini því til þín að viðskiptaráðherra á að vera hér stödd þegar við eigum við hana orðastað. (Gripið fram í: Er ég ekki hér?) Þú varst frammi á gangi, hæstv. ráðherra.