152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

[14:14]
Horfa

Erna Bjarnadóttir (M):

Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi máls míns taka undir þakkir til ráðherrans fyrir að vera hér í þessari umræðu, svo að það sé nú sagt. Því hefur ítrekað verið haldið fram að þessi sala á Íslandsbanka eigi sér fyrirmyndir í aðferðum við einkavæðingu í Evrópu. Samt staðfesti forstjóri Bankasýslunnar, á opnum fundi fjárlaganefndar í gær, að engin dæmi séu um sölu á sambærilega kerfislega mikilvægum banka, sem endurheimtur hefur verið í eigu almennings, með þeim aðferðum sem hér var farið svo vel yfir áðan. Hverju er þá verið að líkja saman? Má yfirleitt líkja þessu við nokkuð sambærilegt? Þá hefur líka verið sagt að það hefði aldrei getað gerst í svipuðu útboði erlendis að starfsmenn söluráðgjafar hefðu fengið að kaupa hlutabréf. En gildir ekki sama löggjöf um þessa starfsemi hér og í nágrannalöndunum okkar, þar sem erlendir söluráðgjafar t.d. störfuðu? Ég bara spyr því að ég veit það ekki. Vilji menn leita að fyrirmyndum í Evrópu verða menn alla vega að taka allan pakkann, ekki treysta á hókus-pókus aðferðina eða bera fram skýringar þess efnis að menn séu svo slappir í að koma frá sér því sem þeir vildu sagt hafa. Eru það í alvörunni viðteknir starfshættir, þegar lokað útboð fer fram á banka í ríkiseigu í Evrópu, að hringt sé í hóp fjárfesta? Ég bara spyr. Ég tel fullvíst að slíkt útboð í Evrópu hefði verið takmarkað við það sem við köllum í alvörunni fagfjárfesta og við skiljum öll að hafi verið kynnt á umræddum fundi 4. febrúar og jafnvel að sett hefðu verið skilyrði um að eiga þyrfti eignarhlutinn í tiltekinn tíma. Mögulega hefði þar þurft einhvern frekari atbeina í löggjöf eða slíku, ég veit það ekki. En vissulega tel ég að það hefði þurft að skoða. En allar þessar eftiráskýringar og aftur eftiráskýringar, og ef það dugar ekki þá eru það bara hrútskýringar, eru ekki sú aðferð sem við viljum hafa í upplýsingagjöf til almennings og þings.