152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

[14:16]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég hóf umræðuna á því að segja að ég væri sammála hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra um að ábyrgðin á bankasölunni hljóti að vera stjórnmálamanna sem tóku ákvörðun í málinu. Ábyrgðin er nefnilega fjármálaráðherrans og stjórnarliðar geta ekki falið hann á bak við Bankasýsluna, á bak við miðlara úti í bæ eða með því að slá ryki í augu fólks með því að segja: Upplýsingamiðlun hefði kannski mátt vera betri.

Stjórnarþingmönnum er tíðrætt um stóru myndina. Fyrir mér er stóra myndin þessi: Hrávöruverð fer hækkandi. Verð á matvöru fer hækkandi. Verðbólga fer vaxandi og lífskjör versna. Skapa þarf sátt í samfélaginu um mótvægisaðgerðir til að jafna leikinn og létta undir með þeim sem þurfa á því að halda, skapa sátt í samfélaginu til að takast á við erfiðar aðstæður.

Framlag ríkisstjórnarinnar til þessarar nauðsynlegu sáttar er að gefa útvöldum auðmönnum afslátt á eigum almennings, þar á meðal föður fjármálaráðherrans, og ýfa sárar minningar upp af bankahruninu. Ég varð fyrir vonbrigðum með ræðu hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra í upphafi þessarar umræðu vegna þess að í hana vantaði broddinn og afdráttarleysið sem birtist í viðtalinu við Morgunblaðið sem vitnað hefur verið í. Hefur hæstv. ráðherrann einfaldlega skipt um skoðun eða talar hún gegn eigin sannfæringu til að halda ríkisstjórninni eitthvað lengur saman?