152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

[14:18]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessar góðu umræður hér í þinginu um bankasölu nr. 2, ef við myndum orða það þannig, og segja að fyrsta salan gekk vel af því að hún var almenn, gegnsæ og allir gátu tekið þátt í henni. Það var svo ákveðið í kjölfarið að fara nýja leið, hina svokölluðu tilboðsleið og eitt af því sem Bankasýslan segir er að við þurfum að leita til fagfjárfesta og það yrði þá mögulega aðeins meiri samþjöppun á eignarhaldi. Þetta er gert til þess að bankanum verði ekki mögulega stjórnað í krafti minnihlutavalds, ekkert óeðlileg aðferðafræði ef þú hugsar það út frá þessu.

Hv. þm. Oddný G. Harðardóttir spurði hvort ég hafi skipt um skoðun. Nei, ég hef svo sannarlega ekki skipt um skoðun. Ég tel að það sé mikilvægara að það ríki traust til þess þegar við erum að selja ríkiseignir og þrátt fyrir að kostnaðurinn hefði orðið meiri ef við hefðum farið í almennt útboð — það var talið að þessi kostnaður yrði á bilinu 400–700 milljónir, sem er vissulega hátt, en almenna útboðið er nær 2 milljörðum. Ég hefði frekar viljað að við hefðum greitt meira og við hefðum þá tryggt almennt aðgengi, gagnsæi og að við myndum halda áfram að styðja við traust á því sem við erum að gera. Þannig að ég hef svo sannarlega ekki skipt um skoðun.

En í lokin þá tel ég að þær umræður sem eiga sér stað hér í þinginu og dagurinn í dag hafi verið mjög gagnleg vegna þess að hér eigum við í þessum rökræðum sem eru nauðsynlegar. Þær eru mjög mikilvægar vegna þess að næst þegar farið verður af stað, hvenær svo sem það verður, þurfum við að gera betur.