niðurstöður úttektar á stöðu og áskorunum í orkumálum með vísan til markmiða og áherslna stjórnvalda í loftslagsmálum, munnleg skýrsla umhverfis-, orku og loftslagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða um orku og orkustefnu. Í skýrslu hæstv. ráðherra orkumála segir:
„Þörf er á aukinni orkuframleiðslu til að anna orkuskiptum á komandi áratugum ef innlend orka verður nýtt, sbr. Orkustefnu. Rafeldsneyti er hægt að framleiða innan lands eða flytja inn. Orkuskipti eru talin þurfa á bilinu 4-24 TWst sem fer eftir því hversu mikið innlent rafeldsneyti kann að vera framleitt. Hæsta orkutalan er áætluð til fullra orkuskipta.“
Við þurfum að fara í orkuskipti á næstu árum. Skýrslan sýnir svart á hvítu að til þess að fara í slík orkuskipti þarf að virkja meira og efla flutningskerfi raforku. Þá hefur vatnsstaða í söfnunarlónum verið slæm undanfarin ár. Á sama tíma geta flutningskerfi ekki komið til móts við það þegar vatnsstaðan er lág sums staðar en góð annars staðar. Við verðum að fara að taka tillit til þess að við erum í vandræðum með orkuflutning. Það er auðvitað alveg eins og kom fram hjá, held ég nafna mínum, í sambandi við línulagnir og að flytja orkuna, stundum er verið að sóa gífurlegri orku vegna þess einfaldlega að það var ekki hægt að flytja hana. Hvað segir það okkur? Hvernig getum við leyft okkur að framleiða þessa vistvænu orku en sjá ekki til þess að það sé hreinlega hægt að flytja hana á milli staða þar sem þörf er á henni? Við þekkjum af eigin raun þann vandræðagang sem hefur verið á Suðurnesjum þar sem einhvern veginn hefur verið hægt að stöðva flutning, ekki hægt að byggja nýjar línur og ekki hægt að finna viðeigandi lausn gagnvart því sveitarfélagi sem hefur stöðvað þann möguleika.
Við erum líka að verða vitni að því að verið er að leggja nýjar línur fyrir norðan og þar er verið að gera hluti í andstöðu við bændur. Það er ekki ásættanlegt. Maður getur vel skilið það þegar verið er að leggja raforku í gegnum land viðkomandi bónda og jafnvel verið að kljúfa land með línunni, það er ekki ásættanlegt. Við eigum að finna lausnir. Það er skrýtið að við skulum vera í þeirri aðstöðu að þetta sé hreinlega að skerða möguleikana á að nýta alla þá orku sem við erum að framleiða. Það er miður hversu lengi ýmsar þarfar framkvæmdir hafa tafist á skipulagsstiginu, t.d. Suðurnesjalína 2, eins og ég var að segja, og Hvalárvirkjun og fleiri aðrar þarfar framkvæmdir. Það er að vísu ekki bara í raforkumálum þar sem framkvæmdir tefjast á skipulagsstiginu, t.d. hefur Sundabraut tafist of lengi.
Við þurfum líka að tryggja af fremsta megni raforkuöryggi af efnahagslegu tagi. Við verðum að tryggja að raforkuverð til heimilanna hækki ekki. Þegar kemur að orkuskiptum þá á ekki að beita refsiaðgerðum til að breyta hegðun fólks eins og með því að hækka eldsneytisgjöld eða setja kolefnisskatt á heimili. Frekar ættum við að stuðla að því með hvötum að efnaminna fólk geti valið á milli jarðefnaeldsneytisbíla og rafmagnsbíla. Við vitum það og það er staðreynd að efnaminna fólk er á eldri bílum og er að keyra bíla sem yfirleitt eyða og menga meira og það er einfaldlega vegna þess að það hefur hreinlega ekki efni á öðru. Það hefur verið reynt að setja það þannig upp að flestir eigi að geta nýtt almenningssamgöngur en við vitum að fyrir einstaklinga sem eru með börn í skólum og leikskólum og íþróttum, og þetta er allt í sitt hvora áttina, þá getur reynst mjög erfitt að nota almenningssamgöngur til að uppfylla þær þarfir.
Það eru fleiri lausnir í sjónmáli. Í skýrslunni er bent á að framleiðslugeta metans er um fjórfalt meiri en metanknúin ökutæki landsins nota. Þarna liggur tækifæri. Hið opinbera þarf að stíga inn í og finna leiðir til að auka notkun á metani sem annars þarf að brenna. Metanið er aukaafurð hjá Sorpu og því getum við ekki skrúfað fyrir framleiðsluna. Notum því tækifærið og nýtum metan t.d. á bíla opinberra starfsmanna. Það er eitt af því sem hefur verið ótrúlega ljótt að sjá, í afar langan tíma var metani bara brennt, engum til gagns. Þetta er auðvitað sóun og hugsunarleysi, algjört.
Það er annað sem hefur komið fram, bæði út frá því að það vantar orku og líka út frá stöðu lóna og vegna þess að ekki er hægt að flytja orkuna, að við erum að brenna olíu vegna orkuskorts. Það er auðvitað algerlega óásættanlegt í okkar orkuríka landi að við skulum láta það viðgangast. Og eitt af því ljótasta sem við höfum gert er auðvitað að selja orkukvóta til orkusóðanna erlendis og láta það viðgangast að það sé verið að skrifa á Ísland að við séum að nota kjarnorku, kolabrennslu, olíubrennslu. Þetta er auðvitað ekki ásættanlegt. Við erum að vísu að brenna olíu í neyðartilfellum en við erum ekki að nota kjarnorku, við erum ekki að brenna kol almennt. En það er alveg með ólíkindum að það skuli vera hægt að selja einhvern mengunarkvóta. Tilgangurinn með því að kaupa mengunarkvóta hlýtur að vera sá að halda áfram að menga og við eigum ekki að aðstoða einn né neinn við það.
Síðan er það sem ég hef áður bent á, sem er auðvitað stórfurðulegt fyrirbrigði, en það eru allir þessir milliliðir í raforkusölunni. Á hverjum bitnar það? Jú, það bitnar á neytendum og það er auðvitað alveg með ólíkindum að ef neytandinn fattar ekki þegar hann er að flytja, og nýr neytandi kemur inn og kaupir íbúðarhúsnæði eða eitthvað, að hann þarf að velja sér orkusala. Ef hann velur sér ekki orkusala þá er hann bara fluttur hreppaflutningum til dýrasta raforkusalans sem selur á hæsta verðinu, og viðkomandi hefur kannski ekki hugmynd um það að hann getur valið sér þann aðila sem hann vill kaupa af. Þarna getur verið um töluverðar upphæðir að ræða, kannski ekki mánaðarlega en á ársgrundvelli þá er um stóra fjármuni að ræða.
Við höfum sýnt fram á að við framleiðum gæðagrænmeti í gróðurhúsum og þar eigum við gífurleg tækifæri og eigum að fara að nýta okkur þau. Svo er það verðið á raforku til álvera og spurningin er: Er sambærilegt verð á orku sem verið er að selja til t.d. álvera til álframleiðslu og til grænmetisframleiðslu, og ef álframleiðslan fær ódýrari raforku en framleiðsla á grænmeti, er það eðlilegt? Við vitum að við getum framleitt gæðagrænmeti, og eins og ég hef margoft bent á: Ef Hollendingar geta í sínu landi verið stórtækir í framleiðslu á grænmeti þá ættum við leikandi létt að geta gert það líka. Eins og ég hef áður bent á erum við byrjuð í stórkostlegum útflutningi á agúrkum og fleiri afurðum og það sýnir að við getum þetta. Við þurfum bara að skapa grundvöllinn fyrir því að aðilar geti komið svona framleiðslu á og séð til þess að viðkomandi aðilar sem vilja framleiða gæðagrænmeti, hvort sem það er fyrir innanlandsmarkað svo við verðum sjálfbær eða til útflutnings, fái raforku á viðunandi verði.
Síðan er það auðvitað náttúran. Þar verðum við að passa okkur að ganga vel um. Við höfum fengið í arf náttúru á sínum tíma og ég verð bara að segja alveg eins og er að frá því að ég fæddist til dagsins í dag hefur orðið gífurleg breyting á náttúrunni. Það er af okkar völdum og því miður ekki allt til góðs. Okkur ber skylda að reyna af fremsta megni að halda náttúrunni þannig að næsta kynslóð geti notið þess sem mín kynslóð hafði í sambandi við náttúruna. En það er því miður útilokað. Við erum að leika okkur að eldinum. Við erum í kapphlaupi við tímann í sambandi við hlýnun jarðar og síðast en ekki síst þurfum við að taka okkur á og passa okkur að vera ekki sofandi.
Bara í síðustu viku kviknuðu gróðureldar í Noregi og það sendi enn einn hrollinn niður eftir bakinu á mér vegna þess að ég hef margoft komið í þennan ræðustól og bent á að það þarf að gera öryggisráðstafanir, t.d. í Skorradal og öðrum skógum á Íslandi, þannig að það séu brunavarnir og brunahólf og brunaskjóður tilbúnar til að koma í veg fyrir stórkostleg náttúruspjöll og jafnvel manntjón vegna gróðurelda. Við erum ekki tilbúin. Við erum alltaf einhvern veginn að tala um það og okkur finnst það svo fjarlægt, það geti ekki kviknað í hjá okkur, en við þekkjum það frá Mýrum þegar kviknaði í mosa. Við vitum að við sleppum ekki, við vitum að það eru þurrkar og áhyggjurnar eru nú þegar komnar vegna þess að það þarf svo lítið til. Við höfum séð það í sinubrunum og við sáum það bara í Heiðmörkinni á sínum tíma, þegar kviknaði í þar, hvað þetta er fljótt að ske. Við erum að sjá þetta alls staðar en einhvern veginn höldum við alltaf að þetta komi ekki fyrir okkur og við byrgjum ekki brunninn fyrr en það verður of seint. Við eigum að sjá til þess að búa til brunahólf og flóttaleiðir á þessum gróðursvæðum, vera tilbúin með allar græjur sem þarf ef það kviknar til þess að geta slökkt eldana. Vonandi þurfum við aldrei að nota það, það væri það langbesta, en ef við þurfum að nota það þá getum við gripið til þess og það verður hægt að stöðva hugsanlega gróðurelda strax í byrjun og koma þannig í veg fyrir að það verði stórkostlegt tjón bæði á náttúru og mannvirkjum og ekki síst að koma í veg fyrir að fólk lendi í hættu vegna gróðurelda. Við erum búin að sjá þetta í Ástralíu, við erum búin að sjá þetta í Kaliforníu, við erum búin að sjá úti um allan heim og við eigum ekki að stinga hausnum í sandinn og segja: Nei, nei, þetta er bara úti í heimi, þetta kemur aldrei hingað. Við höfum sagt þetta um marga hluti en það endar alltaf á því að það kemur hingað. Þannig að verum viðbúin og gerum allt sem við þurfum að gera til að tryggja að við förum ekki að byrgja brunninn eftir á.