152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

niðurstöður úttektar á stöðu og áskorunum í orkumálum með vísan til markmiða og áherslna stjórnvalda í loftslagsmálum, munnleg skýrsla umhverfis-, orku og loftslagsráðherra. - Ein umræða.

[16:25]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir mjög góða og málefnalega umræðu. Ég held að það sé óhætt að segja að hv. þingmenn taki þessari skýrslu vel og hún sé gott tæki, eins og ég nefndi, til að takast á við þessi stóru verkefni.

Ég fékk fyrirspurn frá hv. þm. Orra Páli Jóhannssyni um hvort ekki væri verið að vinna að því að forgangsraða þegar kemur að heimilunum. Eins og komið hefur fram þá setti ég á síðasta ári af stað raforkuöryggishóp til að skoða nákvæmlega þau mál og það er í samræmi við það sem hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir var að vísa til, svo því sé svarað.

Ég held að flestir séu á því að það sé mikilvægt að við göngum hratt til verks. Það liggur á í þessu stóra máli. Eitt af því sem menn hafa nefnt er einföldun regluverks og eins og hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttir vísaði til þá hefur þrátt fyrir málþóf stjórnarandstöðunnar alla vega komist til nefndar frumvarp um varmadælur. Hins vegar er frumvarp um stækkun virkjana ekki enn þá komið fram. Mér fannst svolítið sérstakt að hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir talaði um að hér væri lítið gert því að það eina sem stendur í vegi fyrir framfaramálum er málþóf stjórnarandstöðunnar. Viðreisn tekur virkilega þátt í því. Það er hins vegar sorglegt að heyra menn tala eins og hv. þingmaður gerði og segja að við ættum að taka ESB til fyrirmyndar í orkumálum. Guð minn góður, ef það væri nú leiðin. Við erum að tala hér um ríkjabandalag sem er í slíkum vandræðum og heimurinn er í vandræðum vegna þess að það er háð Rússum. Þeir eru með 30% af endurnýjanlegum orkugjöfum en við erum með 85% og ég ætla ekkert að fara dýpra í það.

Svo kom hér hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og var með mikla ólund og gekk svo langt að kalla hv. þingmann Vinstri grænan. Ég hélt að hv. þingmaður ætlaði með þessari ólund að vísa til þess að ég væri eins og fyrri forystumenn Sjálfstæðisflokksins sem voru út af hitaveituvæðingunni og rafveituvæðingunni að takast á við menn eins og hv. þingmann sem vildu halda í olíu og kol og gas. En svo var ekki. Eða þá að hv. þingmaður myndi vísa til þess að ég væri eins og David Cameron sem hv. þingmaður hitti sem forsætisráðherra og var að leggja drögin að sæstreng. Af hverju vildi David Cameron sæstreng? Jú, það var út af loftslagsmálum. En það var ekki.

Svo var hér hv. þm. Andrés Ingi Jónsson og þetta er ekki búinn að vera hans dagur, svo mikið er víst. Hann toppaði sig hins vegar alveg í þessari ræðu og það er ekki tími til að elta ólar við allar þær rangfærslur sem þar komu fram. En ég verð að segja, virðulegi forseti, að það að tortryggja eins og hv. þingmaður gerði skýrsluhöfunda og reyna að gera lítið úr þeirra störfum fannst mér ekki vera við hæfi svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Ég held að enginn hafi haldið öðru eins fram og hv. þingmaður gerði þegar hann var að gera lítið úr þessum störfum þeirra. Og reyndar er það nú svo að hv. þingmaður sýnir hér í hverri ræðunni á fætur annarri mikla heift og hatur og það væri gott ef væri hægt að virkja það í þágu orkuskiptanna. Það myndi auðvelda verkefnið mjög.

En aðalatriði máls er það, virðulegi forseti, eins og hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir sagði, að þetta er mál sem við eigum að ræða hér vegna þess að þetta er forgangsmál. Við erum með mjög háleit markmið í loftslagsmálum og það þurfa allir að leggjast á eitt til að ná þeim. Þess vegna er ég ekki hér að hreykja mér af því að vera að leysa það mál því að það gerir það enginn einn. Þess vegna erum við að fara að vinna með atvinnulífinu og sveitarfélögunum öllum, ekki bara hv. þingmönnum vonandi heldur öllum, vegna þess að þetta er þjóðarátak ef við ætlum að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Einhver hefur sagt að þau séu allt of háleit. (Forseti hringir.) Hugsum til þeirra sem gengu á undan okkur sem hitaveituvæddu landið, sem rafvæddu landið, það voru svo sannarlega stór verkefni (Forseti hringir.) þegar íslensk þjóð var ekki jafn vel sett og hún er núna.