málefni innflytjenda.
Frú forseti. Það eru atriði sem ég kom inn á síðastliðna nótt sem mig langar aðeins að ramma inn aftur fyrir þá sem fylgjast með núna að degi til. Ég held að hluti röksemda fyrir því að málið sé tekið inn á þessari stöku viku á milli þinghléa sé það ástand sem er uppi í Úkraínu, mikill fjöldi flóttamanna sem þaðan kemur þessar vikurnar. Enginn velkist í vafa um mikilvægi þess að taka vel á móti þeim sem flýja átök í heimalandi sínu og ég heyri ekki annað en að í öllum meginatriðum hafi það sem betur fer tekist vel hingað til, og er það vel. Í því samhengi verð ég að gera athugasemdir við að sú staða sem þar er uppi, það flæði flóttamanna sem þaðan kemur þessar vikurnar, sé notuð sem rök fyrir því að flýta þurfi þessu tiltekna máli í gegn sem gengur út á það að auka langtímaaðlögun þeirra sem fá vernd hér með það fyrir augum að viðkomandi aðilar setjist hér að til lengri tíma.
Sem betur fer er það þannig að flestir þeir sem nú flýja Úkraínu ætla sér eins fljótt og mögulegt er að snúa til baka þó að enginn okkar viti í hve langan tíma þær hörmungar munu standa yfir. En það vandamál sem þar er verið að glíma við er allt annars eðlis en langtímafyrirkomulag málefna fólks í leit að vernd hér á Íslandi. Ég held því að við verðum að nálgast þau mál er snúa að Úkraínu og flóttamannastraumi þaðan sem algerlega sértækt mál, algerlega sérstakt, og ekki blanda því saman við þetta púsl í heildarstefnumótun sem felst í lögum um málefni innflytjenda. Það er allt annars eðlis, þau markmið er snúa að því að tryggja langtímaaðlögun þeirra sem hingað sækja og hér fá vernd, en það markmið að veita raunverulega bráðaaðstoð þeim mikla fjölda sem hingað kemur núna frá Úkraínu.
Ég nefndi hér í fyrri ræðu að væntanlega væri einhvers staðar á færibandi ráðuneytisins þingsályktunartillaga í vinnslu sem send var í samráðsgátt stjórnvalda síðastliðið vor og kláraði meðferð þar í september 2021. Þegar ég leitaði á netinu sá ég að þessari þingsályktunartillögu ráðherra hafði verið dreift 1. apríl sl. en ekki hefur verið mælt fyrir henni enn sem komið er. Það kemur mér því á óvart ef það er eitthvert vit í því, eins og virðist vera ætlan ráðherra, að slíta þessi mál í sundur. Fljótt á litið slær það mig þannig að hér sé um öfuga röð hluta að ræða, þ.e. að klára þetta mál áður en þingsályktunartillagan sem rammar inn stærri myndina er afgreidd, hvað þá mælt fyrir henni. Í því ljósi held ég að það blasi við að skynsamlegt sé að geyma þetta mál fram yfir það hlé sem fram undan er á þingstörfunum og gefa nefndasviði, hvort sem það væri fjárlaganefnd eða hv. allsherjar- og menntamálanefnd, tækifæri til að greina þær tölur sem hér er kallað eftir upplýsingum um. Eins og þetta liggur fyrir núna þá er verið að gera þetta með töluvert miklum handarbakavinnubrögðum. Ég ætla nú, af því að tíminn styttist hjá mér í þessu ræðuslotti, að koma inn á téða reglugerð sem var dreift hér 1. apríl sl. í næstu ræðu minni.
Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að vera settur aftur á mælendaskrá.