málefni innflytjenda.
Frú forseti. Ég hef verið að fara yfir þær miklu breytingar sem hafa átt sér stað í heiminum á undanförnum áratugum og munu eiga sér stað í fyrirsjáanlegri framtíð. Ég benti á það í ræðu áðan að borg sem fáir könnuðust við í Malaví, Blantyre, yrði 57 milljóna manna borg í lok þessarar aldar og höfuðborgin Lílongve yrði enn þá stærri. Á sama tíma er það ljóst að fólksfjöldinn sem mun vilja leita sér að betri lífskjörum mun aukast mjög mikið jafnt og þétt, ár eftir ár, áratug eftir áratug. Það kallar á forgangsröðun af okkar hálfu, annars vegar við að hjálpa þessum löndum, þróunarlöndunum, að byggja sig upp, gera hvað við getum til að verja þar mannréttindi en einnig að auka hagsæld. En það mun engu að síður ekki draga úr, alla vega ekki næstu áratugina, úr fjöldanum sem mun leita annað. Þvert á móti, eins og ég rakti hér áðan, mun hann aukast. Svoleiðis að innan eins mannsaldurs mun heimurinn breytast mjög mikið og úrlausnarefnin verða mjög stór og munu kalla á það að viðbrögðin séu metin út frá innihaldi og staðreyndum en ekki þeirri yfirborðsmennsku sem því miður einkennir stjórnmálin allt of mikið nú til dags.
Hvernig sem þróunin verður nákvæmlega þá er alla vega ljóst að hún mun hafa mjög veruleg áhrif á umhverfismál, öryggismál, efnahagsmál og fjölmargt annað. Það jafnvægi sem hefur ríkt mun víða raskast. Annað er óhjákvæmilegt. Hættan sem því fylgir er auðvitað sú að það leiði til átaka innan ríkja eða á milli þeirra. Áttum okkur á því að stríð milli til að mynda landa eins og ég hef nefnt og annarra landa eða innan slíkra landa með slíkan gríðarlegan fólksfjölda, ég tala nú ekki um með nútímavopnum, gætu falið í sér meiri hrylling en maður vill reyna að ímynda sér. En hvort sem tekst að koma í veg fyrir slíkt eða ekki þá er a.m.k. ljóst að fólksflutningar milli heimshluta munu bara aukast og við þurfum að taka mið af því. Það hefur því verið áhyggjuefni að sjá nú þegar, þrátt fyrir það sem mætti kannski kalla tiltölulega lítinn fjölda þótt hann sé nú töluverður, en tiltölulega lítill í samanburði við það sem er í vændum, hefur hann valdið mjög verulegu álagi á til að mynda stjórnvöld í Evrópuríkjum og skapað óróa innan þeirra landa. Þau mega ekki við meiru af því og vandamál Evrópusambandsins eru nú fleiri en svo að ég ætli að verja miklum tíma í þessari umræðu í að rekja þau. En þessi fyrirsjáanlega þróun er þó áminning um mikilvægi þess að menn fari að taka sér tak í Evrópu, í evrópskum stjórnmálum. Og hvað á ég við með því? Jú, það sem ég er sífellt að hamra á hér, að menn leyfi sér að ræða staðreyndir og innihald og sníða lausnir að raunveruleikanum því að við þurfum á því að halda, við höfum þurft á því að halda og við munum enn frekar þurfa á því að halda en nú er í framtíðinni. Þess vegna veldur það manni áhyggjum að sjá að íslensk stjórnvöld kasti fram frumvarpi sem virðist vera vanhugsað, svo ekki sé meira sagt. Og þrátt fyrir að það sé að birtast hér enn á ný eftir nokkrar tilraunir hafa menn ekki enn haft fyrir því að svo mikið sem reikna fjárhagsleg áhrif af því. Einhverjum kann að þykja óviðeigandi yfir höfuð að reikna fjárhagslega áhrif af málum sem snúa að því að aðstoða fólk. En það er því miður, frú forseti, nauðsynlegt til að við getum nýtt fjármagnið sem best til að hjálpa sem flestum og hjálpa þeim sem þurfa mest á hjálpinni að halda. En þess sést hvergi stað í þessu frumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Mér finnst tíminn alltaf líða hraðar og hraðar, en fyrir vikið bið ég yður að skrá mig aftur á mælendaskrá.