málefni innflytjenda.
Frú forseti. Ég varð mér úti um útprentað eintak af tillögu um þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2022–2025, sem var dreift hér á Alþingi 1. apríl sl. en hefur ekki verið mælt fyrir. Ég þakka starfsfólki þingfundaskrifstofu fyrir snaggaraleg viðbrögð við að útvega mér þetta plagg. Um er að ræða þingsályktunartillögu sem er grunduð á þeirri stefnu sem formuð var í skýrslu sem ég nefndi hér áðan, sem var frá 2019 og er einmitt vísað til í því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar. Ég verð að ítreka það sem ég sagði í síðustu ræðu minni að röð hlutanna er svolítið skrýtin að mér þykir. Ég hefði talið borðleggjandi að þessi þingsályktunartillaga yrði samþykkt áður en það frumvarp sem hér er til umfjöllunar verður samþykkt og hún hlýtur allra hluta vegna að liggja til grundvallar heildarsýn í málaflokknum sem um ræðir. Þetta plagg er 35 blaðsíður og mig langar að grípa niður á bls. 33, í kafla sem heitir Um flóttafólk. Þar segir í lið 5.1, um samræmda þjónustu við flóttafólk og þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd, með leyfi forseta:
„Sífellt fleiri einstaklingar og fjölskyldur neyðast til þess að flýja heimalönd sín vegna ofsókna og stríðsátaka. Samhliða því óska fleiri einstaklingar eftir alþjóðlegri vernd á Íslandi. Þar til fyrir skemmstu kom mikill meiri hluti þeirra einstaklinga sem fengu alþjóðlega vernd á Íslandi í gegnum Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna í boði stjórnvalda, svokallað kvótaflóttafólk. Flóttafólk sem kemur á eigin vegum til landsins var áður fámennur hópur en hefur farið ört vaxandi undanfarin fimm ár. 87% þeirra sem fengu vernd á Íslandi árið 2019 voru einstaklingar sem komu á eigin vegum. Nokkur munur hefur verið á þjónustu við þessa tvo hópa en í megindráttum felst sá munur í því að ríkissjóður greiðir starfsmannakostnað sveitarfélaga vegna þjónustu við kvótaflóttafólk á fyrsta árinu en ekki vegna þeirra sem koma á eigin vegum, og sveitarfélög útvega leiguhúsnæði þegar um ræðir kvótaflóttafólk en aðrir þurfa að finna sér húsnæði sjálfir. Unnið hefur verið að því að jafna og samræma þjónustuna við allt flóttafólk og er nú verið að hefja innleiðingu á reynsluverkefni til 12 mánaða um samræmda móttöku flóttafólks hjá áhugasömum sveitarfélögum. Verkefnið verður metið og þær breytingar innleiddar sem þörf er á.“
Þetta segir hér í kaflanum um flóttafólk. Þetta sýnir okkur auðvitað þá grundvallarbreytingu sem er ætlunin að ná fram hvað varðar skyldur ríkisins við þá sem hingað sækja vernd. Það getur ekkert misskiljist þó að reynt sé að tipla á tánum í kringum það í texta í frumvarpinu sjálfu, þetta er bara teiknað upp hér með mjög einföldum og skýrum hætti í þessari þingsályktunartillögu. Eins og segir hér aftur, með leyfi forseta:
„Nokkur munur hefur verið á þjónustu við þessa tvo hópa en í megindráttum felst sá munur í því að ríkissjóður greiðir starfsmannakostnað sveitarfélaga vegna þjónustu við kvótaflóttafólk á fyrsta árinu en ekki vegna þeirra sem koma á eigin vegum, og sveitarfélög útvega leiguhúsnæði þegar um ræðir kvótaflóttafólk en aðrir þurfa að finna sér húsnæði sjálfir.“
Þetta kann að hljóma sakleysislega en þetta er meiri háttar breyting. Ef við sjáum fyrir okkur, bara umræðunnar vegna og horfum til nýlegra talna, að það séu um 500 einstaklingar á ári sem koma hingað til lands á eigin vegum, sem sagt ekki undir formerkjum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, þá eru það 500 einstaklingar á ári sem fá þarna rétt til 12 mánaða aðstoðar á húsnæðismarkaði og slík aðstaða verður ekki hrist fram úr erminni. Það blasir við. Það virðist vera að verið sé að reyna að ná fram þessum grundvallarbreytingum á móttökukerfi flóttamanna með miklum viðbótarskyldum á hið opinbera. Það er reynt að gera það (Forseti hringir.) með einhverjum leynitrixum.
Ég kem betur inn á þetta í næstu ræðu, tíminn er svo stuttur núna. Ég bið virðulegan forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.