málefni innflytjenda.
Frú forseti. Ég hef að undanförnu reynt að setja þetta viðfangsefni í samhengi og ætla að ljúka þeim kafla ræðuhaldanna með því að vitna í vefsíðuna sigmundurdavid.is, með leyfi forseta. Þar segir, í grein um þessi mál:
„Fólk mun ekki hætta að nýta þau tækifæri sem það telur að því bjóðist til að bæta lífskjör sín og fjölskyldna sinna. […] Sókn fólks í betri kjör fyrir sig og sína er eðlileg og hún mun halda áfram. Sú þróun hjálpar hins vegar ekki raunverulegum flóttamönnum. Þeir eru margir og þeir þarfnast mikillar aðstoðar. Stefnu- og framtaksleysi Evrópuríkja og ESB í bland við stórvarasama hvata mun ekki hjálpa fólki til lengdar. Á næstu árum og áratugum mun þurfa að aðstoða mikinn fjölda flóttamanna og takast um leið á við gríðarlega stór viðfangsefni sem fylgja breyttum heimi. Stærstu viðfangsefni samtímans munu ekki hverfa ef menn tala ekki um þau. Þau munu bara stækka og verða erfiðari viðureignar því síðar sem tekist er á við þau.
Til að byrja með þarf stefnu. Ef stjórnmálamenn, embættismenn, fjölmiðlar, fræðimenn og aðrir sem hafa það hlutverk að ræða lausnir, horfa til framtíðar og móta stefnu þora ekki að ræða stærstu úrlausnarefni samtímans (nema með innihaldslausum frösum) eru þeir að eftirláta öfgamönnum umræðuna og lausnirnar. Ef það gerist er ólíklegt að heimurinn haldi áfram að batna.“
Ég veit ekki hvort þingmenn danskra jafnaðarmanna hafa fylgst með skrifum á þessari vefsíðu, sigmundurdavid.is, en þeir hafa a.m.k. svarað þessu kalli og reyndar verður að viðurkennast að þeir hafa verið í umræðu um þessi mál núna í nokkur ár og eru orðnir leiðandi, þessir dönsku jafnaðarmenn, í umræðu um málaflokkinn í Evrópu, á ýmsan hátt. Við sáum nýjasta dæmið þegar Bretar ákváðu að fara þá leið sem fyrst var velt upp af dönskum jafnaðarmönnum og farið að skoða, að koma á móttökumiðstöð í Afríkuríkinu Rúanda.
Stefna danskra jafnaðarmanna í þessum málaflokki er yfirgripsmikil. Hún er úthugsuð og tekur á málinu í heild, annað en segja má um stefnu margra stjórnmálaflokka, þar með talið flokkanna í ríkisstjórn Íslands á þessu sviði. Ég held því að það sé tilefni til að fara yfir stefnu danskra jafnaðarmanna í þessum málaflokki og hyggst ég nú gera það.
Í Danmörku hefur hælisumsóknum fækkað mjög verulega á undanförnum árum eða um 90%. Hælisumsóknum í Danmörku hefur fækkað um 90% frá árinu 2015. Það er vegna nýrrar nálgunar þarlendra stjórnvalda á þennan málaflokk sem snýst ekki um að við eigum að hætta að aðstoða fólk heldur að beina því í réttan farveg og gera það af meira öryggi og skynsemi.
Covid-árið 2020 voru hins vegar afgreiddar 585 hælisveitingar á Íslandi á meðan allt var meira og minna lokað vegna heimsfaraldurs. Það var hlutfallslega nífalt meira en í Danmörku. Ég hef áður nefnt að hælisumsóknir hafi fyrir upphaf faraldursins verið orðnar sexfalt fleiri á Íslandi hlutfallslega en í Danmörku og Noregi en eftir að faraldurinn hófst hefur þessi skekkja aukist enn og þegar litið er til afgreiddra umsókna á þessu Covid-ári, 2020, voru þær hlutfallslega nífalt fleiri á Íslandi en í Danmörku. Það er afleiðing þeirra skilaboða sem íslensk stjórnvöld senda frá sér og þeirra skilaboða sem dönsk stjórnvöld senda frá sér. (Forseti hringir.)
En, frú forseti, þetta var bara inngangurinn að stefnu danskra jafnaðarmanna svoleiðis að ég verð að biðja yður að setja mig aftur á mælendaskrá svo ég geti komist að meginefninu.