málefni innflytjenda.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ernu Bjarnadóttur fyrir prýðisgóða ræðu og þótt ekki væri með formlegum andsvarahætti þá kom fram vangavelta í ræðu hv. þingmanns er snýr að því hvort frumvarpið, hljóti það samþykki eins og það liggur fyrir, sé líklegt til að auka sókn þeirra sem gera sér neyð fólks að féþúfu til að kynna Ísland sérstaklega sem áfangastað í þeim misindistilgangi sem slíkir aðilar stunda. Ef við horfum á það með hvaða hætti innihaldi frumvarpsins sem hér er rætt um er raunverulega lýst í þingsályktunartillögunni sem ekki er búið að mæla fyrir en var dreift hér í þinginu 1. apríl sl. er algerlega augljóst að það sem er í þessu samhengi kallað púllfaktor, aðdráttarafl, er aukið. Það mun aukast með samþykkt þessa frumvarps. Eins og segir í þingsályktunartillögunni sem ekki er búið að mæla fyrir, þar sem borin er saman staða þeirra sem koma hingað á forsendum kvótaflóttamannakerfisins og síðan allra hinna sem koma á eigin vegum með einum eða öðrum hætti, með leyfi forseta:
„Nokkur munur hefur verið á þjónustu við þessa tvo hópa en í megindráttum felst sá munur í því að ríkissjóður greiðir starfsmannakostnað sveitarfélaga vegna þjónustu við kvótaflóttafólk á fyrsta árinu en ekki vegna þeirra sem koma á eigin vegum, og sveitarfélög útvega leiguhúsnæði þegar um ræðir kvótaflóttafólk en aðrir þurfa að finna sér húsnæði sjálfir.“
Bara þetta atriði sem er skrifað hér og ég tilgreini — þetta er bara texti sem ég les úr þingsályktunartillögu sama ráðherra og leggur fram málið sem við ræðum hér, um náskylt efni, og auðvitað fáránlegt að verið sé að ræða þetta í þessari röð í þinginu — er augljóslega til þess fallið að auka þrýsting á fjölgun umsókna hingað og þá sérstaklega hjá þeim aðilum sem gera sér neyð fólks að féþúfu, eins og hefur komið fram í umræðunni í gær; dæmi sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók frá Finnlandi, þar sem Finnarnir skildu ekkert í því að umsóknum hafði á örskotsstundu fjölgað um tugi þúsunda. Mig minnir að þetta hafi verið milli 40.000 og 60.000 umsóknir sem voru umfram það sem eðlilegt hefði talist. Finnarnir áttuðu sig ekki á hvað olli þessu en svo kom í ljós að það var einhver smávægileg breyting sem gerð hafði verið á regluverkinu sem flóttamannakerfið vann innan sem hafði orsakað það að misindismenn sem gera sér neyð fólks að féþúfu höfðu farið að stýra straumi sem áður fór til Belgíu, ef ég man rétt, til Finnlands og nýta sér þá glufu sem hafði myndast með þessari smávægilegu breytingu sem enginn taldi, við samþykkt þess frumvarps, að hefði nein afgerandi áhrif. Þetta myndi ég telja miklu skýrara hvað varðar slík áhrif, það sem ég taldi upp hér úr þingsályktunartillögunni, sem verður væntanlega mælt fyrir um leið og er búið að þvinga þetta mál í gegn. Svarið við spurningunni eða vangaveltum sem hv. þm. Erna Bjarnadóttir velti hér upp er því miður já. Ég held að frumvarpið eins og það liggur fyrir muni auka þennan púllfaktor eins og hann er kallaður, aðdráttaraflið.
Ég átta mig á því að allar líkur eru á, miðað við það að hér mæti varla nokkur þingmaður stjórnarflokkanna, að þingmenn, a.m.k. sumir hverjir, kyngi ælunni, samþykki þetta og voni að þeir sleppi sem best frá umræðu um þetta mál. En ég vil þá í öllu falli að þingmenn stjórnarflokkanna, sérstaklega Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, verði settir í þá stöðu að samþykkja þetta með galopin augun, (Forseti hringir.) meðvitaðir um þau raunverulegu kostnaðaráhrif sem af þessu hljótast. Þótt erfitt geti verið að leggja mat á afleiddu áhrifin eru þau áhrif sem hljótast af því að færa hópa á milli þessara þjónustuflokka — það er auðvelt að ná utan um þann kostnað. (Forseti hringir.)
Ég bið hæstv. forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.