152. löggjafarþing — 71. fundur,  28. apr. 2022.

málefni innflytjenda.

271. mál
[19:23]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Þetta verður að líkindum síðasta ræða mín við 2. umr. þessa máls og ég vil bara fagna því að málið hafi verið sett í þann farveg í sátt þingflokka að það gangi nú til nefndar milli 2. og 3. umr. þar sem verður gerð greining á ákveðnum tölulegum upplýsingum og staðreyndum sem mér hefur þótt vanta mjög í gögn þessa máls, greinargerð með frumvarpinu og það sem fram hefur komið frá hæstv. ráðherra, bæði í framsöguræðu og andsvörum, og í raun hjá þeim ráðherrum sem fluttu málið á fyrri þingum.

Við í Miðflokknum höfum óskað eftir því að nefndin hlutist til um að það fari fram kostnaðarmat vegna samræmdrar móttöku flóttamanna í nefnd milli 2. og 3. umr. þannig að málið komi til umræðu hér að afloknu hléi vegna sveitarstjórnarkosninga eftir að þessi greiningarvinna hefur átt sér stað. Óskað er eftir er að mat verði lagt á þann kostnað sem leiðir af því að jafna eða samræma þjónustu við flóttafólk, hvort sem það kemur hingað til lands á eigin vegum, í boði stjórnvalda eða í gegnum fjölskyldusameiningu. Nánar tiltekið verði mat lagt þann kostnað sem af því leiðir að einstaklingar sem falla undir stafliði a, b, c og e í 2. gr. frumvarps félags- og vinnumarkaðsráðherra um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 16/2012, sem er á þingskjali 380, 271. mál — að réttindi sem útlistuð eru í III. kafla í viðmiðunarreglum flóttamannanefndar um móttöku og aðstoð við hópa flóttafólks, sem gefnar voru út 10. maí 2013, með sérstaka áherslu á 15. gr. þeirra viðmiðunarreglna sem tryggja ríkari réttindi en þau sem tryggð eru með reglugerð um útlendinga, nr. 540/2017, fyrir þá hópa sem tilgreindir eru hér að ofan, sem sagt áðurnefnda hópa. Við hjá Miðflokknum óskum eftir því að kostnaðarmat fari fram miðað við þann fjölda sem mun njóta aukinna réttinda á grundvelli samræmdrar þjónustu, annars vegar út frá þeim sem þegar hafa fengið vernd og hlotnast réttindi innan þess tímaramma sem 15. gr. viðmiðunarreglna flóttamannanefndar rammar inn og svo árlegan kostnað miðað við meðalfjölda síðustu þriggja ára verði sama fjölda veitt vernd árlega og að jafnaði undanfarin þrjú ár, að teknu tilliti til hlutfalls á milli kvótaflóttamanna og þeirra sem koma eftir öðrum leiðum á því tímabili. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um meðalheildarkostnað við hverja tilhæfulausa umsókn.

Við óskum sem sagt eftir því að málið gangi til nefndar milli umræðna að aflokinni atkvæðagreiðslu á morgun. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég tel þetta býsna góða lausn á málinu vegna þess að megingagnrýni mín hefur gengið út á það að okkur þingmönnum sé uppálagt að greiða atkvæði um þetta mál án þess að fullnægjandi upplýsingar um kostnað sem af því leiðir liggi fyrir. Ég tel það vera til mikilla bóta og raunar til fyrirmyndar að allir þingflokkar hafi fallist á þessa meðhöndlun málsins og ég vona að þetta geri okkur kleift þegar kemur að 3. umr. málsins að ræða það út frá fyllri staðreyndum en þingmönnum var boðið upp á hér í greinargerð og texta frumvarpsins sjálfs.