listamannalaun.
Virðulegur forseti. Það er kannski rétt að benda á það, af því að fjallað var um tónhöfunda hér áðan, að þetta frumvarp snýst ekki um tónhöfunda og ekkert frumvarp frá menningar- og viðskiptaráðherra sem lýtur að tónhöfundum hefur komið hingað inn í þingið. Það er því ekki þannig að það sé einhvers konar málþóf sem standi í veginum, ef við viljum kalla það málþóf. (Gripið fram í.) — Það er ekki það frumvarp sem hér er til umræðu. (Gripið fram í.)— Já, já, það er þá í fjárlögum og svoleiðis. Þetta er eina frumvarpið sem hefur komið frá hæstv. ráðherra um þessi efni. Í raun hefði það mátt koma fram talsvert fyrr og við skulum hafa í huga að það er stjórnarmeirihlutinn sem fer með dagskrárvaldið hér í þessum sal.
Annars vildi ég í seinni ræðu minni benda á svolítið athyglisvert samhengi. Oft er það þannig, þegar listamannalaun eru veitt, að það verður uppi fótur og fit í samfélaginu. Því er alla vega slengt fram, og verður einhvern veginn að stórfrétt, að þessi eða hinn fái listamannalaun, og fjölmiðlar gera sér mat úr upphæðunum o.s.frv. Mér sýnist að á undanförnum árum hafi það verið á bilinu 600–700 milljónir sem settar hafa verið í þennan málaflokk. Það er svolítið kunnugleg tala. Við höfum verið að ræða mikið um sölu á Íslandsbanka og þóknun sem nokkrir söluráðgjafar fengu fyrir nokkurra klukkustundavinnu eitt kvöld í mars eða febrúar, hvenær sem það nú var, fyrir að hringja í hinn og þennan í sínum kúnnahópi. Það hefur nú aldeilis vakið athygli í samfélaginu. Það er akkúrat sama upphæðin — 700 milljónir, sem þessir ágætu söluráðgjafar, sem eru nú til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu, fengu fyrir sinn snúð — og tugir eða hundruð listamanna fá núna, þökk sé þessu ágæta frumvarpi. Mér finnst ágætt að halda samhengi hlutanna til haga. Þessum peningum er vel varið. Við skulum halda áfram og gera enn betur næst.