152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

afstaða ráðherranefndar til bankasölu.

[10:33]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Forseti. Bankasölumálið tekur sífellt á sig skrýtnari myndir. Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, upplýsti á þingi í gær að hún hefði ekki verið eini ráðherrann sem hafði áhyggjur af söluferlinu. Aðrir ráðherrar í ráðherranefnd um efnahagsmál, þ.e. þau Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson, hafi líka verið með sínar áhyggjur. Það voru fyrir okkur hér í þinginu nýjar upplýsingar. Sem sagt: Allir ráðherrarnir höfðu sínar efasemdir og sínar áhyggjur en gerðu ekkert til þess að upplýsa um þær áhyggjur sínar. Þeir upplýstu ekki þingið, ekki þingflokka sína, ekki fjölmiðla eða almenning.

Við heyrðum síðan í morgun að fjármálaráðherra sló aðeins á efasemdirnar innan ráðherrahópsins en undirliggjandi er að efasemdir og áhyggjur voru til staðar. Við heyrðum líka í gær að samstarf og samvinna formanns og varaformanns Framsóknar sé framúrskarandi. Það er náið og gott eins og mátti skilja á ræðu varaformanns Framsóknarflokksins. Það er auðvitað afskaplega ánægjulegt. Formaður Framsóknarflokksins hefur því eðlilega vitað af áhyggjum viðskiptaráðherrans í ráðherrahópi um efnahagsmál.

Ég vil því spyrja, virðulegi forseti: Af hverju gerði formaður Framsóknarflokksins ekkert með viðvaranir varaformannsins? Af hverju tók hæstv. innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins frekar afstöðu með fjármálaráðherra og tillögum hans en sínum eigin ráðherra, sínum eigin varaformanni og auðvitað nána og góða samstarfsmanni?