152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

afstaða ráðherranefndar til bankasölu.

[10:35]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt að í Framsóknarflokknum ríkir mikill samhugur og eindrægni í þeirri stefnu sem við erum að vinna eftir og við ræðum gjarnan saman og erum sammála um á hvaða leið við erum að fara, enda hefur hún reynst vel og þjóðin tekið eftir henni, eins og menn upplifðu í kosningum í haust.

Varðandi bankasölumálið vil ég segja þetta: Það er eitt að viðra vangaveltur, athugasemdir, hafa áhyggjur. Það er eðli máls okkar í stjórnmálum. Það er hins vegar líka þannig að við eigum að hlusta á sérfræðingana. Sérfræðingarnir komu með ákveðna tillögu. Við sem stjórnmálamenn hljótum að spyrja hvort þær séu réttar og viðrum þá athugasemdir okkar, áhyggjur, eftir atvikum spurningar, setjum skilyrði. Staðan er hins vegar að þrátt fyrir talsvert mikla umræðu þá var því miður enginn, hvorki í ráðherranefnd né ríkisstjórn né hér í þinginu, né heldur þegar samráð var haft við allan almenning í landinu, alla sérfræðingana, því miður enginn, og ég er svekktur út í sjálfan mig, ekki heldur í þessum sal, ekki heldur þeir þingmenn sem hæst hafa galað á síðustu dögum … (Gripið fram í: … þjóðinni að kenna?)(Gripið fram í: Galað?) — Talað, afsakið. Enginn benti á að það hefði verið skynsamlegt að setja lágmark um það hversu hátt eða lágt þessir svokölluðu fagfjárfestar ættu að geta keypt fyrir. Það setti enginn hugmyndir um slík skilyrði, að það þyrftu að vera einhvers konar siðferðileg viðmið. Lærdómur okkar sem erum í pólitík er einfaldlega sá að fjármálamarkaðnum (Forseti hringir.) virðist því miður ekki vera treystandi. (Forseti hringir.) Við verðum að setja skilyrði þannig að það sé ekkert svigrúm til túlkana þegar kemur að því að selja. (Forseti hringir.) Ég get sagt það líka hér, og kannski verð ég að syndga upp á nokkrar sekúndur, forseti, (Forseti hringir.) að sérfræðingarnir sem við treystum finnst mér að hafi brugðist.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími í óundirbúnum fyrirspurnum er tvær mínútur hið fyrra sinni og ein mínúta í síðara sinni.)