152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

afstaða ráðherranefndar til bankasölu.

[10:38]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Nú er ég að reyna að rýna í þessi svör hæstv. ráðherra. Þetta er sem sagt Alþingi að kenna. Þetta er sem sagt sérfræðingunum að kenna. Það er þjóðinni að kenna að ríkisstjórnin klúðraði bankasölu, þessu risahagsmunamáli fyrir alla þjóðina. Það var ekki ríkisstjórnin. Það var þjóðin. Það voruð þið hérna, þingheimur. Þið spurðuð ekki réttu spurninganna. Það voru sérfræðingarnir og það hefði átt að setja skilyrði fyrir siðferðisleg viðmið. Það vill svo til að í stjórnsýslureglum, sem ráðherrar í ríkisstjórn eiga að fara eftir, eru einmitt siðferðisleg viðmið. Það heitir hæfisreglur. Það heitir það að fylgja eftir rannsóknarskyldu sinni um það hvernig söluferlið eigi að fara fram. Það er aumkunarvert að vera hér í þingsal og heyra hvern ráðherrann á fætur öðrum koma hingað upp og firra sig ábyrgð af öllu heila klabbinu. Þið eruð í ríkisstjórn. Þið eruð ekki sérfræðingar úti í bæ.