152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

afstaða ráðherranefndar til bankasölu.

[10:39]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég missti út úr mér „galað“ áðan þegar ég meinti „talað“. Svo kem ég núna og þarf að fara að svara fyrir það sem ég sagði áðan. Ég sagði: Ég er svekktur á því að hafa ekki brugðist við, en ég benti á að það hefði enginn annar gert það heldur fyrr en eftir þetta. Ég er núna eftir á tilbúinn að skrifa nákvæmlega hvaða skilyrði hefðu þurft að vera þarna til þess að þessir hlutir gengju eðlilega fyrir sig (Gripið fram í.) og ég býst við, hv. þm. Logi Einarsson, ef ég má klára tala svo ég fari nú ekki aftur fram úr, að við séum öll í þessum sal sammála um það. Ég er sannfærður um að þjóðin, sem er ósátt við þessa framkvæmd, og það er ég líka, ósáttur, væri glöð yfir því ef við hefðum sett þau skilyrði þar sem þetta væri skynsamleg, flott aðgerð, meira virði fyrir þessa eign ríkisins. Við vorum að selja 22%, það voru þarna einhver 1, 2, 3% sem fengu þennan hlut og ég er ósáttur við það þó að hann sé svona lítill af því að mér finnst framkvæmdin hafa mistekist á þessu verki.