152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

leiðrétting búsetuskerðinga öryrkja.

[10:41]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Umboðsmaður Alþingis, héraðsdómur, Landsréttur og Hæstiréttur komust að þeirri niðurstöðu að búsetuskerðingar á sérstöku uppbótinni væru ólöglegar. Þáverandi félagsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, tók þá ákvörðun að leita heimildar til að áfrýja málum til Hæstaréttar þrátt fyrir hvatningu Öryrkjabandalagsins um að láta staðar numið. Hér væri verið að tala um þá einstaklinga sem verst stæðu í þjóðfélaginu og þeir væru skertir svo að þeir lifðu jafnvel langt undir framfærsluviðmiði íslenskra stjórnvalda, þ.e. þeir einstaklingar sem hafa það hvað verst í okkar samfélagi hafa verið skertir allt frá 2009 og það langt niður fyrir lágmarksframfærslu og í sárafátækt. Niðurstaða Hæstaréttar er skýr. Ég trúi því ekki að ríkisstjórnin ætli að skýla sér á bak við einhverjar fyrningarreglur heldur sýni þá ábyrgð að gera að fullu upp, af ólöglega ránsfengnum, við þá og það aftur til 2009, til fólks sem þurfti að draga fram lífið í svelti og sárafátækt í boði ríkisins í nær 13 ár með þeim afleiðingum að fólk hefur ekki einu sinni lifað af löglegan rétt sinn á bótum. Sex ár í málarekstri eins og áður segir — því miður lifði viðkomandi ekki þann dag að bið hans eftir réttlætinu tæki enda. Þeirra tími er kominn, þau geta ekki beðið lengur eftir réttlætinu. Er komin ný merking í þetta? Er það sú merking að viðkomandi sé bara dáinn og þess vegna eigi hann ekki að njóta réttlætis? Ég spyr því hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra: Er það rétt að ríkið ætli bara að borga fjögur ár aftur í tímann og það til apríl 2018?