152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

leiðrétting búsetuskerðinga öryrkja.

[10:43]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta mikilvæga mál upp hér í þingsal. Ég held að við getum öll verið sammála um að þessi niðurstaða er mikilvæg fyrir þann hóp samfélagsins sem hér um ræðir. Þetta er niðurstaða sem þýðir að ríkið mun ekki lengur skerða framfærsluuppbót hjá þessum einstaklingum út frá búsetutíma hérlendis og það er mikilvægt. Það er mikilvægt að það sé komið á hreint í gegnum öll dómstig. Ég vil taka sérstaklega fram að það er alltaf erfið ákvörðun í svona málum hvort það eigi að áfrýja áfram. Það var gert í þessu tilfelli. Það voru lögfræðilegar ástæður fyrir því. En það mikilvægasta er að málið er komið á hreint. Ég fagna niðurstöðunni og ég fagna niðurstöðunni vegna þess að hún er réttlætismál og þar veit ég að við hv. þingmaður erum hjartanlega sammála. Fyrsta verk mitt, eftir að þessi niðurstaða lá fyrir, var að breyta reglugerð sem breytir því ferli og þeirri málsmeðferð sem viðhöfð er, þeirri greiðslureglu sem Tryggingastofnun hefur unnið eftir, þannig að frá og með næstu mánaðamótum er þetta leiðrétt gagnvart þeim sem þetta á við um og framvegis.

Síðan er þá næsta skref, sem hv. þingmaður kemur inn á, og það er að ákvarða hvað eigi að greiða langt aftur í tímann. Þetta er fordæmisgefandi mál. Það er mat sérfræðinga í ráðuneytinu hjá mér og í ráðuneyti fjármála- og efnahagsmála — þar hefur sú niðurstaða fengist, í samtali milli ráðuneytanna, að hér eigi fyrningarfresturinn að eiga við, þ.e. að greitt verði fjögur ára aftur í tímann frá uppkvaðningu dóms. Tryggingastofnun er að vinna að því að útbúa þessar greiðslur og vonandi gengur það eins hratt fyrir sig og mögulegt er.