leiðrétting búsetuskerðinga öryrkja.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Svörin eru skýr: Ef sköttum væri rænt frá ríkinu, virðisaukaskatti eða öðrum sköttum, og ránsmaðurinn myndi segja: Heyrðu, ég er með allan peninginn hér og ég ætla að skila ykkur einum þriðja en ég ætla að halda eftir tveimur þriðju — yrði það samþykkt? Hvers lags ofbeldi er þetta? Þetta er tvöfalt ofbeldi. Fyrst er ríkissjóður dæmdur til að borga þessu fólki, verst setta fólkinu í landinu — sérstaka uppbótin er fyrir þá til þess að geta tórað, ekki lifað. Þá kemur ríkið og segir: Við rændum af ykkur í 13 ár en við ætlum bara að skila ykkur fjórum. Þeir eru nefnilega uppteknir við að láta aðra ríka menn græða nógu mikið. Það heyrðist einhvern tímann að þetta væri kostnaður. Hvernig getur það verið kostnaður ef þú brýtur lög og tekur fé af fólki sem á ekki fyrir mat? Átti ekki að skila þessu? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)