leiðrétting búsetuskerðinga öryrkja.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið. Ég vil bara ítreka það sem ég sagði áðan: Það er komin niðurstaða, hún er góð fyrir samfélagið, hún er góð fyrir þennan hóp sem vissulega er einn af þeim hópum sem allra lökust hefur kjörin í íslensku samfélagi. Og það er hópur sem við eigum að berjast fyrir. Við þurfum að halda áfram að bæta kjör örorkulífeyrisþega og það er svo sannarlega á stefnuskrá þessarar ríkisstjórnar. Fyrsta skrefið var stigið um síðustu áramót þegar aukaprósentshækkun og leiðrétting á falli krónunnar var gerð, sem er jákvætt fyrsta skref. Núna erum við í undirbúningsvinnu að heildarendurskoðun kerfisins með það að markmiði að einfalda það, hækka grunnlífeyri, draga úr tekjutengingum og reyna að búa til kerfi sem getur betur tekið utan um þennan mikilvæga þjóðfélagshóp þannig að hann geti betur tekið þátt í samfélaginu, hvort sem það er á vinnumarkaði eða utan vinnumarkaðar. Og við skulum halda áfram að vinna að því saman hér á Alþingi.