152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

ábyrgð á söluferli Íslandsbanka.

[10:48]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra hefur sagt alveg skýrt að ábyrgðin á bankasöluklúðrinu sé fyrst og fremst stjórnmálamanna, þ.e. þeirra sem sitja í ráðherranefnd um efnahagsmál. Þess vegna kemur svolítið á óvart að innviðaráðherra skuli nú koma hingað upp og halda því fram að þetta sé allt einhverjum sérfræðingum að kenna, ráðgjöfum ráðherra en ekki ráðherranum sem ber ábyrgðina. Fyrri spurning mín er því þessi: Er hæstv. innviðaráðherra ósammála varaformanni eigin flokks um ábyrgðina í þessu máli?

Nú er það alveg á hreinu að lögin sem gilda um þetta ferli gera ráð fyrir að ráðherra ráði ferðinni á öllum stigum þess, að ráðherra vaki yfir söluferlinu, ráðherra leggi línurnar um söluaðferð og markmið sölunnar, upplýsi Alþingi rækilega um öll þessi atriði og taki svo lokaákvörðun um það hvort gengið sé að tilboðum eftir að hafa yfirfarið rökstutt mat Bankasýslunnar. Við vitum eftir fundinn í morgun að ráðherra var ekki einu sinni meðvitaður um það hvort hann væri að taka stjórnvaldsákvörðun eða ekki þegar hann tók ákvörðunina. Hann virðist hafa tekið ákvörðunina á tveimur klukkustundum. Auðvitað væri athyglisvert að heyra frá hæstv. innviðaráðherra hvort meiri háttar ákvarðanir um almannahagsmuni séu teknar með sama hætti í hans ráðuneyti og hvort honum finnist þetta forsvaranlegt.

Seinni spurning mín er þessi: Bjóst hæstv. innviðaráðherra við því að mörgum litlum og kvikum fjárfestum með vægast sagt vafasama sögu af bankarekstri yrði hleypt inn í þetta ferli? Er þetta það sem ráðherra bjóst við? Er þessi aðferð og þessi niðurstaða, sem hæstv. fjármálaráðherra ber óskoraða ábyrgð á, lagalega og pólitíska ábyrgð, öll saman í samræmi við stefnu Framsóknarflokksins og þau gildi sem Framsóknarflokkurinn og hæstv. innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson vill standa fyrir?