152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

ábyrgð á söluferli Íslandsbanka.

[10:50]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að svara síðustu spurningunni fyrst, þær voru reyndar nokkrar. Eins og ég lýsti hér í fyrra svari við annan hv. þingmann um sama mál þá er ég svekktur þegar niðurstaðan liggur fyrir. Mér var ekki ljóst — ég held að engum þingmanni hafi verið ljóst að það yrðu einhverjir sem gætu keypt fyrir milljón eða tíu milljónir eða eitthvað slíkt. Ég held að því miður sé ástæðan að það kom okkur á óvart, að okkur datt ekki einu sinni í hug að setja slíkt lágmark, hvorki við ríkisstjórnarborðið, í ráðherranefndinni né í meðförum Alþingis, né heldur þegar haft var samráð við alla sérfræðingana úti í bæ. Það gerðist nefnilega á fyrri stigum málsins þegar við seldum með almennum hætti. Þá fengum við viðbrögð. Ég fékk viðbrögð frá fólki, sérfræðingum sem hjálpuðu okkur hér inni í þinginu við að búa til enn skýrari leikreglur. Það er enginn vafi á að ráðherrar og stjórnmálamenn bera ábyrgð á ákvörðunum. Það liggur alveg fyrir. Það er enginn vafi á því. Ég er bara að lýsa því að þessi framkvæmd, þar sem við erum með armslengdarfjarlægð, búin að koma henni til Bankasýslunnar, er ekki í samræmi við það sem ég bjóst við, hvorki upplýsingagjöfin sem við fengum, hún er ekki að mínu viti nægjanlega góð, né framkvæmdin, undirbúningur framkvæmdarinnar, hvernig það er gert. Við höfum hér í þinginu verið að kalla eftir enn frekari upplýsingum og ég held að það séu allir sammála um það að upplýsingagjöfin hefði mátt vera betri. Og í þriðja lagi þá kemur kannski í ljós að söluaðilarnir hafa hugsanlega brugðist. Við vitum að það er verið að rannsaka það og þess vegna þarf að rannsaka það til hlítar því að ellegar kennum við Bankasýslunni um (Forseti hringir.) það sem söluaðilarnir hafa hugsanlega gert án þess að hafa lagastoð til þess. Ég þekki það ekki. Rannsóknir eru í gangi.