ábyrgð á söluferli Íslandsbanka.
Virðulegur forseti. Ég heyri að hæstv. ráðherra er svekktur og einkum svekktur með upplýsingagjöfina og undirbúninginn. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra, og þetta er mín fyrsta spurning hér í annað sinn, hvort hann sé ósammála því að samkvæmt lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins á fjármálafyrirtækjum sé upplýsingagjöfin til Alþingis einkum og sér í lagi á hendi fjármálaráðherra, á ábyrgð fjármálaráðherra, í ljósi þess að það er fjármálaráðherra sem leggur greinargerð fyrir Alþingi og skyldan til að upplýsa um alla þætti málsins liggur hjá fjármálaráðherra.
Í öðru lagi vil ég spyrja: Nú liggur fyrir samkvæmt traustsmælingum að 70% þjóðarinnar treysta Bjarna Benediktssyni illa. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. innviðaráðherra: Treystir hæstv. innviðaráðherra hæstv. fjármálaráðherra Bjarna Benediktssyni vel til að halda áfram að hafa forgöngu um einkavæðingu og sölu á ríkiseignum? (Forseti hringir.) Treystir innviðaráðherra hæstv. fjármálaráðherra Bjarna Benediktssyni til þess verkefnis?