ummæli innviðaráðherra á búnaðarþingi.
Virðulegi forseti. Fyrir fáeinum vikum síðan varð hæstv. innviðaráðherra uppvís að því að hafa látið óviðeigandi ummæli falla um framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands. Síðan þá hefur ráðherra beðist afsökunar þar sem hann sagðist m.a. vera að læra á sjálfan sig en í þessum sjálfsskoðunarleiðangri hefur ráðherra láðst að koma fyrir fjölmiðla og þingið en það er mikilvægt að ráðherra geri grein fyrir stöðu sinni hér í þingsal og gagnvart þjóðinni.
Á síðasta þingi voru samþykkt lög um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna. Með lögunum er m.a. lagt bann við hvers kyns mismunun á öllum sviðum samfélagsins vegna kynþáttar eða þjóðernisuppruna og á þetta einnig við um áreitni þegar hún tengist kynþætti eða uppruna. Hugtakið áreitni er síðan skilgreint í lögunum þannig, með leyfi forseta:
„Hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna.“
Ég vil því beina þeirri spurningu til hæstv. innviðaráðherra hvort hann telji ummæli sín í garð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna falla undir þessa skilgreiningu laganna. Svo ég vísi í skilgreininguna hér að framan: Voru ummælin í óþökk framkvæmdastjórans? Höfðu ummælin þau áhrif að virðingu framkvæmdastjórans hafi verið misboðið? Leiddu þau til niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna?