152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

ummæli innviðaráðherra á búnaðarþingi.

[10:59]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Það er alveg ljóst að hæstv. innviðaráðherra svaraði ekki spurningunni minni sem laut að því hvort ummælin hefðu fallið innan þessarar skilgreininga laganna. Það er það sem ég er að velta fyrir mér hér. Ég tel að þetta mál sé stærra en svo að það lúti eingöngu að persónulegum samskiptum ráðherra þar sem ráðherra er í stöðu gagnvart þjóðinni, annarri heldur en aðrir meðlimir hennar.

Síðari spurning mín varðar traust. Nú er það ljóst að traust í garð ríkisstjórnarinnar hefur hríðfallið á síðustu vikum og væri stjórnin fallin ef blásið væri til kosninga í dag. Traust í garð innviðaráðherra hefur einnig fallið og þá gætir ekki einvörðungu áhrifa af bankasölunni heldur spila ummæli ráðherrans væntanlega sína rullu líka. Ég vil því spyrja ráðherra um traust: Hvernig hyggst ráðherra axla ábyrgð og endurbyggja traust? Það er ekki nóg að biðjast afsökunar, orðum verða að fylgja aðgerðir. Hvað ætlar ráðherra og hans flokkur að gera (Forseti hringir.) til að berjast gegn kynþáttafordómum í samfélaginu, uppræta þá, (Forseti hringir.) standa vörð um mannréttindi og velferð fólks af erlendum uppruna?