152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

Garðyrkjuskólinn á Reykjum.

[11:08]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég get verið sammála hv. þm. Ernu Bjarnadóttur um að það hefði ekki átt að skipta máli að starfsnám — af því að Landbúnaðarháskólinn er með starfsnám. Ég hef reyndar haft áhyggjur af því starfsnámi vegna þess að í lögum um háskóla er hvergi minnst á starfsnám. En staðreyndin er hins vegar sú að einhvern veginn á þessu 15 ára ferli hefur það engan veginn tekist að hálfu Landbúnaðarháskólans að láta stöðina á Reykjum blómstra. Það er það sem hefur þurft að höggva á og það er það sem var gert núna. Það er auðvitað þannig að þangað til að slík ákvörðun hefur verið tekin er Garðyrkjuskólinn á Reykjum undir Landbúnaðarháskólanum. Og það sem Landbúnaðarháskólinn gerði í gær gildir þá ekki héðan í frá vegna þess að verið er að taka ákvörðun um að breyta þessu fyrirkomulagi til að fara að byggja upp til þess að taka utan um þau tækifæri sem eru í garðyrkjunni á Íslandi.