152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

húsnæðismarkaðurinn.

[11:09]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Við getum a.m.k. verið sammála um eitt hér í þessum þingsal, að það er fullkomið ójafnvægi á húsnæðismarkaði. Sú hækkun á húsnæðisverði sem orðið hefur á undanförnum misserum hefur valdið heimilum, fyrirtækjum og í rauninni efnahagslífinu öllu ákveðnum erfiðleikum. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er rætt um það og lögð mikil áhersla á að leysa þann vanda sem glímt er við. Ég hef mínar skoðanir á því hvar sá vandi liggur. Hann er að stórum hluta framboðsvandi. Þá kemur að skyldum sveitarfélaga við að tryggja nægjanlegt framboð á byggingarlóðum, hvort heldur fyrir íbúðir eða atvinnuhúsnæði, þannig að jafnvægi geti skapast. Ég hlýt auðvitað að horfa til stærsta sveitarfélagsins og þeirra skyldna sem stærsta sveitarfélagið hefur í þeim efnum.

Ég vil hins vegar spyrja hæstv. innviðaráðherra tveggja spurninga með þessum formála. Í fyrsta lagi: Hvernig miðar vinnu innviðaráðuneytisins við að finna lausnir á þeim undirliggjandi vanda sem glímt er við? Í öðru lagi: Hver telur ráðherra að sé ábyrgð stærsta sveitarfélagsins, þ.e. Reykjavíkur? [Kliður í þingsal.] Ég heyri að þetta veldur einhverjum sem eru með fulltrúa í meiri hluta Reykjavíkurborgar einhverjum áhyggjum en lofum ráðherra að svara þessari spurningu. Hver telur ráðherra að sé ábyrgð stærsta sveitarfélagsins, þ.e. Reykjavíkurborgar, á þessum vanda sem er framboðsvandi og hefur valdið þeim erfiðleikum sem við erum að glíma við?