152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

húsnæðismarkaðurinn.

[11:14]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætlega skýr svör. Ég geri mér grein fyrir því að á tveimur mínútum er ekki hægt að svara með fullnægjandi hætti jafn viðamikilli spurningu. Það gleður mig hins vegar að sú vinna sem boðuð hefur verið er í fullum gangi. En ég spyr hæstv. ráðherra: Telur hann að það kunni líka að vera eitthvað í regluverki eða lögum sem gerir sveitarfélögunum erfiðara fyrir að tryggja nægjanlegt framboð, og þá á ég við sveitarfélögin í heild, af byggingarlóðum íbúðalóðum? Við megum ekki heldur gleyma atvinnuhúsnæðinu, sem skiptir gríðarlega miklu máli. Við þurfum því að skoða það hér skipulega hvort við þurfum með einhverjum hætti að koma til móts við sveitarfélögin og auðvelda þeim að skipuleggja lóðir og tryggja að framboð sé nægjanlegt þannig að við stöndum ekki frammi fyrir stöðugum framboðsvanda á komandi árum.